Friday, November 2, 2012

Hassperur í búmba

Ég er búin að vera á náttfötunum í allan dag. Brjálað veðrið úti og ég vissi að ég var ekki á leiðinni út og það voru engir gestir væntanlegir svo það gafst aldrei ástæða til þess að klæða sig. En ég svaf í nótt! Varð ekki andvaka fyrr en hálf 8 / 8 í morgun og það er sko alveg ásættanlegt skal ég segja þér. Þá fór ég bara fram í sófa og prjónaði og beið eftir að Albert skriði á fætur.

Við pökkuðum í spítalatöskuna í dag, góð tilfinning að vera búin að því. Það eru nokkrir hlutir sem á eftir að græja, en það er ekkert stress með þá. Albert hætti sér út í vonda veðrið til að kenna eldri nemandanum sínum og á meðan tók ég mig til og vaxaði á mér fæturna. Það var aðeins meira challenging en ég er vön því grindin er orðin svo slæm, en það tókst að lokum. Þegar Albert kom aftur bakaði ég tvöfalda uppskrift af skinkuhornum á meðan Albert straujaði rúmfötin og skyrtur af sér.

Sjáiði hvað hann er duglegur! Enda lærði hann af þeirri bestu hohoho :P

Jömm

Í gærkvöldi var upphaflega planið að skella okkur út og hlusta á live tónlist en við ákváðum að vera heima því vinkona mín ætlaði að kíkja í heimsókn. Hún cancelaði reyndar en Pálmi tók það á sig að kíkja til okkar og ég henti í bananamuffins.  Nomm þær eru voða góðar, en megnið af þeim fór reyndar í frystinn til að eiga seinna, alveg eins og skinkuhornin :)

Mig vantaði lyftiduft í muffinsið svo ég skellti mér í Nettó kl 22:00 í gærkvöldi. Greinilegt að ég er hressilega að ganga með barn þessa dagana því ég fór í opna sandala og naut þess að láta vindinn leika um tásurnar í 3° frosti! Enda er ég orðin hitapokinn í sambandinu, Albert kemur til mín til að fá hlýju og ekki öfugt. Ég get verið á hlýrabol og nærbuxum þess vegna allan daginn og finnst það bara voða gott. Svo á kvöldin mætir fótapirringurinn og þá er best í heimi ef Alberti er kalt á tánum!

Í gær kíktu Kolla og Lára í heimsókn og Lára kom með skiptitöskuna sem er núna pökkuð og ready to go nema við eigum eftir að sjóða snuddurnar. Aaaallt að gerast! Kolla kom hlaðin gjöfum og erum við orðin ansi spennt að klæða litla guttann í öll þessu fáránlega sætu litlu föt sem við erum komin með! Ég er með húfu á prjónunum núna í stíl við heimferðarbuxurnar og svo er spurning hvort ég hafi ekki tíma líka til að henda í litla vettlinga handa honum.

Þegar Lára var að fara tókum við bumbumyndir af okkur saman og mér fannst fyndið að gera eins og ég gerði á bumbumyndum um daginn, að draga bumburnar inn og gera þær eins litlar og hægt er. Neeema hvað að þetta fór e-ð illa í bumbuna mína! Mér varð fáránlega illt í henni, eins og ég hefði gert 1000 magaæfingar á einu bretti og með massívustu harðsperrurnar. Ég var alveg OUT, þurfti að leggjast fyrir og var svo bara eins og slytti í sófanum næstu 2 tímana og með þvílík óþægindi og verki í bumbunni. Úff sko! Eftir 2 tíma treysti ég mér í að standa upp en ég var aum í bumbunni fram eftir kvöldi. Meira ruglið á manni! En sprikli virðist ekkert hafa kippt sér upp við þetta, bumban er búin að hendast til og frá og skoppa um af hiksta.

Æhh nenni ekki að skrifa meira, X-factor er byrjað og Albert var að koma með sjóðandi heitt popp og ííískalda kók í dós handa mér :P Ég hefði reyndar ekkert á móti bjórnum sem hann er að sötra en það er annað mál :D

2 comments:

Lára Ósk said...

amagad, allt að bresta á!! 4 dagar. Það eru 63 hjá mér og það er stutt :)

Ósk said...

hehe jább geðveikt stutt í settan! En ég held hann komi næstu helgi :)