Sunday, September 30, 2012

vaki vak

mikið væri ég til í að vera sofandi núna... vaknaði fyrir um það bil klst til að pissa, er hundsyfjuð en næ ekki að sofna aftur! Sprikli er á fullu og ég er með þreytuverk í bakinu / mjöðmunum sem leiðir niður í fætur. Svo bætist fótapirringurinn við, aldrei hefði mig grunað að það gæti verið svona gott að láta tærnar standa út undan sænginni! :)

Ég er fegin að eiga snjallsíma svona á nóttunni, get kíkt á netið (og skrifað blogg!) til að láta tímann líða. Albert vill að ég veki sig svo ég þurfi ekki að standa ein í þessu en mér finnst það hrein fásinna að vekja hann svo við getum bæði verið draugar af þreytu á morgun/eftir. Frekar dúllast ég í símanum mínum og gef sjálfri mér innantómt loforð um góðan lúr seinna í dag :P

Síðan ég vaknaði er ég búin að fá nokkra samdrætti en ég er hætt að telja þá. T.d. voru þeir alveg á fullu í gærkvöldi og bara smá stund á milli. Ég held að geðheilsan væri fljót að fara ef ég ætlaði alltaf að vera að tracka þá!

Jæja pabbi er farinn á fætur og ég komin með garnagaul, best að kíkja fram á afmælisbarnið og fá mér smá kókópuffs með honum :)

Sunnudagshvíld

Albert er uppi í íbúð og ég skammast mín fyrir það en ég er með smá samviskubit yfir að vera ekki þar líka að hjálpa til. :$

Ég er farin að sofa svo illa og ligg stundum andvaka í 2 klst áður en ég næ að sofna aftur og það tekur svo mikið af orkunni manns fyrir daginn! Í morgun vaknaði ég klukkan 6 og þegar klukkan var 8 gafst ég upp á þessu og fór framúr, og við vorum komin upp í íbúð rúmlega 9. Fórum svo í sund og maaan alive hvað það var þægilegt að nánast sofna í andapollinum í Breiðholtslauginni! Fengum okkur svo aspasstykki, kíktum á bókasafnið og fórum svo heim þar sem ég gat sofnað smá.

Á bókasafninu náði ég í nokkur prjónablöð en á allri meðgöngunni er ég bara búin að prjóna 1 stakan sokk á sprikla. Það var alltaf draumurinn að vera búin að prjóna heimferðarsett og teppi og alls konar húfur og vettlinga, en ég er ekki að fara að hafa tímann í það fyrir fæðingu. En mig langar samt að prjóna e-ð sætt og hlýtt á hann, helst sem hann getur verið í þegar við förum heim af fæðingadeildinni.

Það gengur ljómandi vel í íbúðinni, en líka frekar hægt. Veit ekki hvenær við getum flutt inn, vonandi næstu helgi en þá er einmitt sléttur mánuður í settan dag. Pabbi skar gólfflísar í gær og núna er megnið af baðherbergisgólfinu orðið flísalagt. Hann segist ekki vilja leggja fleiri flísar nema ég sé á staðnum svo ætli það verði nokkuð fyrr en á þriðjudaginn sem fleiri bætast við því á morgun á hann afmæli og eftir smá kökukaffi förum við Albert á fæðingarundirbúningsnámskeið.

Albert var að senda mér sms "Babyroom tilbúið! :D" Jeij! Hlakka til að sjá hvernig brúni liturinn kemur út!

Hér er mynd af Lúsí! Ég þarf svo að tæma myndavélina til að setja inn fleiri af íbúðinni.
Sætasta Lúsíin mín forvitin um hvað Krummi var að gera á svölunum.

Ég er ekki frá því að brjóstsviðinn og bakflæðið sé verra ef ég er illa sofin, veit ekki hversu margar Rennie ég er búin að taka í dag en samt er ég alltaf ælandi upp í mig! Jömmjömm...

Jæja ég ætla að fara að pakka inn gjöfunum til pabba fyrir morgundaginn og svo ætla ég að velja mér einhverja girnilega uppskrift til að prjóna og fara svo að sofa og vonandi SOFA þangað til ég þarf að vakna til vinnu :P

Thursday, September 27, 2012

Update

Brjálað að gera þessa dagana, ég held ég hafi ekki sest niður með tölvuna síðan ég bloggaði síðast! En ég er svo búin á því í kvöld að við ákváðum að taka frí alveg frá öllu í kvöld og ég set tærnar upp í loft. Vorum reyndar að mála uppi í íbúð eftir vinnu og til átta með góðri hjálp Arndísar og það gengur bara frekar vel! En hér eru punktar yfir það helsta óléttulega:
  • Fór í mæðró í dag, komin 34v2d og sprikli er búinn að skorða sig, væntanlega fyrir þónokkru síðan því ég finn hikstann hans alltaf á sama stað. Hausinn á honum er svo langt ofan í grindinni að ljósan gat ekkert hreyft við honum, enda finn ég oft mikinn þrýsting niður í klof þegar ég er að labba!
  • Hún minnkaði við mig vinnuna niður í 50% því ég er komin með svo mikið grindarlos að ég get illa unnið 8 tíma vaktir og sef illa á nóttunni út af því.
  • Á daginn er lífbeinið verst og "harðsperrurnar" efst á lærunum, en á nóttunni finn ég svaka þreytuverk í mjöðmunum sem leiðir alveg niður í hæla.
  • Yfirmaðurinn fékk sjokk þegar ég sagði honum að ég þyrfti að minnka við mig og sagði mér fyrst að ég yrði allavega að harka það af mér til að byrja með, fyrirvarinn væri of lítill (vottorðið gildir frá og með á morgun). Eftir smá samræður áttaði hann sig á hvað það er stutt eftir og samþykkti vinnuskerðinguna.
  • Á meðan ég er búin að vera í tölvunni er bumban á FULLU og ég held að það gæti jafnvel verið að hann hafi snúið sér aftur því hann fékk hiksta sem færðist og er núna nálægt naflanum á mér! Kjánastrákur, brjálað að gera!
  • Brjóstsviðinn og nábíturinn er ennþá á fullu en ég vil ekki taka lyfin sem eru gefin við þessu því það stendur víst á þeim að þau séu ekki ætluð óléttubínum. Þannig að ég haga matarræðinu bara í kringum þetta og er alltaf með Rennie á mér.
  • Ég er ofsalega fegin hvað ég er með litla og "handhæga" bumbu því annars gæti ég ekki verið eins dugleg í íbúðinni!
  • Bumban mældist ekki nema 32cm (legbotninn) í dag, en ljósan sagði að það væri alveg eðlilegt því hann er svo djúpt ofan í grindinni.
  • Ég get ráðið því hvort naflinn á mér sé "innie" eða "outie", ef ég er slök er hann outie en ef ég spenni magavöðvana fer hann inn! Mjög fönkí að sjá naflann sinn kíkja svona út :S
Hér eru svo þreyttar 34v bumbumyndir, þarna var ég búin að vinna morgunvakt 8 tíma og fara svo upp í íbúð að vinna og klukkan var orðin ellefu um kvöldið :P

34 v bumba


Og þá að íbúðinni!
  • Pabbi flotaði gólfið inni á baði í dag, sem þýðir að við getum keypt gólfflísar á morgun og vonandi lagt nokkrar niður annað kvöld.
  • Hitalögnin gekk vonum framar á baðinu. Það var hellings ryk þegar kallarnir voru að höggva upp úr gólfinu, en lögnin sjálf held ég að hafi heppnast mjög vel þó við Albert höfum eytt heilu kvöldi skríðandi á gólfinu að reyna að þrýsta þessu almennilega niður.
  • Ég fékk sjálf að steypa lagnirnar niður og var frekar montin af mér hvað það gekk vel og mjög þakklát fyrir að vera liðug og með litla bumbu, þetta var örugglega skrautleg sjón og synd að ekki sé til mynd af því!
  • Eftir miklar pælingar enduðum við á að mála íbúðina í lit sem heitir silki-grátt, en á ensku heitir hann beige wool eða e-ð, en við allavega erum mjög ánægð með hann!
  • Inni hjá okkur verðum við svo með 1 veggfóðraðan vegg, aðalveggurinn í stofunni verður grár og 1 veggur í barnaherberginu verður brúnn.
  • Við erum búin að fá hellings hjálp frá Pálma og Magga vinum Alberts og Arndís er búin að vera dugleg að mæta og taka í pensilinn.
  • Pabbi er vinnumaskína, í dag festi hann niður klósettið eftir mjög miklar pælingar um hæðina á því og fjarlægð frá vegg.
Vonandi verð ég duglegri að koma með update jafnóðum, það er miklu skemmtilegra en svona risablogg! En hér eru myndir frá því við fengum íbúðina afhenta eins og ég lofaði í síðustu færslu. 

Fallegi skápurinn í fallega litaða hjónaherberginu

Hinum megin í hjónaherberginu, merkilega gott útsýni m.v. jarðhæð!

Við skulum bara orða það þannig að það var ekki erfið ákvörðun að taka baðherbergið í gegn!

Bjútífúl! Þvottavélin kemur svo þarna hjá ofninum

Eldhúsinnréttingin hægra megin

Og vinstra megin - núna þurfum við bara að safna fyrir uppþvottavél

Bleikt babyroom

Hinum megin frá í babyroom, efst á myndinni er dularfulla líkkistan sem enginn kann skil á

Græna tofan séð inn í eldhús

Stofan og GARÐURINN OKKAR! Á bakvið garðinn er svo róló

Svona vorum við glöð þegar við fengum afhent!

Jæja þá ætla ég að fá mér popp og ískalda kók og fara svo að sofa í hausinn á mér! Ég er nokkuð viss um að sprikli sé búinn að snúa sér, maginn á mér gengur í bylgjum og er harðastur efst. Kjána kjánastrákur! :)

Wednesday, September 19, 2012

Bumbumyndir!

Albert sótti mig eftir vinnu í gær og as per usual settumst við niður með pabba og plönuðum og ákváðum og mátum og hugleiddum endalaust af hlutum í sambandi við íbúðina. Næstu pælingar eru hvernig við viljum hafa lýsinguna á baðinu, en það er e-ð sem ég hef aldrei myndað mér skoðun á áður en þyrfti að vera búin að ákveða fyrir helgi :D

Eftir spjallið tókum við nokkrar bumbumyndir því ég var komin 33 vikur,  ég slepp ekki þó ég sé vel hálsbólguð og örþreytt! Ohh af hverju geta mínar vikur ekki verið sléttar um helgar svo ég geti alltaf verið fresh og sæt á þeim?? :P

Búúmmmba!

Hér sést vel hvað hún er stór finnst mér!

Og hér er ég að sýna æðarnar sem koma alltaf á síðurnar mínar á kvöldin, skærbláar og fínar.

Albert er í skólanum, við pabbi erum á leiðinni að leigja vél til að skera í gólfið fyrir hitalagnirnar. Svo förum við upp í íbúð og þar mun ég geta dúllast við að spastla smá meira og rífa niður e-ð af dúknum í eldhúsinu. Á morgun set ég inn myndir af íbúðinni!

Tuesday, September 18, 2012

33 vikur í dag

Og mér líður vel! Fór upp í íbúð í morgun og skóf lím af veggjum inni á baði og spastlaði í götin í veggjunum. Notaði bakbeltið frá pabba undir lokin og smjattaði á rennie því kornflexið ætlaði ekki að haldast niðri 3 tímum eftir að ég gleypti það í mig. Núna er ég í "hádegishléi" að skoða klósettkassa og handklæðaofna á netinu áður en ég mæti í vinnuna kl. 14. Það er mikið álag í vinnunni þessa dagana og bara þennan mánuðinn. Alltaf margir á bið og jafnvel pirraðir þegar maður svarar og það dregur mann óneitanlega niður.

Mamma sagði við mig um helgina að ég væri komin með ólétturass. (Lesist "feitan rass" af undirritaðri.) Í einlægri afneitun tróð ég mér í skinny jeans í gær og notaði hárteygju í mittið. Obboslega fín, kemst ennþá í skinny jeans og búin að þyngjast um rúm 9 kg. Hefur örugglega ekkert með það að gera að buxurnar eru úr teygjuefni, ónei.

Hvít hárteygja í mittið, stay classy!

Kvefið er á undanhaldi en ég var svakalega aum í hálsinum eftir að hafa talað í símann í 8 tíma í gær. Ég ætla ekki að láta mig hafa það aftur ef staðan verður eins í dag, frekar fer ég fyrr heim. Engin harka á þessum bæ takk fyrir takk! Samdrættirnir voru alveg viðráðanlegir í gær, þeir eru búnir að vera viðloðandi í dag en það tengist örugglega því að ég var andvaka í 2 tíma í nótt, e-ð sem er orðin tíska hjá mér since pregnant. En við sjáum bara til, vonandi halda þeir sig á mottunni og hálsbólgan líka, ég hef allavega fullkomna afsökun til að splæsa á mig heitu kakói :)

Monday, September 17, 2012

Bon Iver slökun

Ég var með töluverða samdrætti í gær, kannski svona 6-8 á klst, svo héldu þeir áfram í morgun og þegar ég fór á fætur fékk ég svaka þrýsting niður í klof svo ég ákvað að heyra í þeim uppi á deild til öryggis. Ég ætlaði að fara í íbúðina og dúlla mér við að spastla (sparsla?) en hún sagði mér að hvíla og fylgjast með samdráttunum næstu 2 tímana svo ég ákvað að hlusta bara á líkamann minn og skreið aftur upp í rúm og hlustaði / dormaði yfir Bon Iver. Lúsí kom og kúrði hjá mér og ofsalega er þetta búið að vera kósý :) Mikið er ég heppin að geta haft þetta svona! Samdrættirnir minnkuðu og ég finn hvað svona hvíld og slökun gerir mikið fyrir kvefið, en ég hljóma einmitt eins og ég hafi skellt mér á góða viskíflösku í gær. Gott að ég vinn ekki á síma eða neitt...

Ákvað að tékka á vinnupóstinum mínum til öryggis, því hann getur safnast svo svakalega upp um helgar. Leiðinlegt að segja frá því en á meðan ég ligg uppi í rúmi  með tölvuna í kjöltunni í ofur kósýheitum þá fóru samdrættirnir aftur af stað við að skoða póstinn. :/ Ég verð bara að rise above it og láta álagið í vinnunni ekki ná svona til mín. Ég á jú bara eftir að vinna þarna í 5 vikur fram að orlofi ef ég fæ vikufríið í byrjun okt sem ég bað um!

Við Albert erum yfir okkur hamingjusöm með íbúðina en ég ætla að segja betur frá henni seinna. Ætla að setja nokkrar myndir inn núna frá því við fórum norður síðustu helgi í afmæli til Hrafns Sölva.

Voðalega gott að láta sig malla í pottinum í sveitinni

Barbapabba afmæliskakan - sjúlega flott og bragðgóð líka!

Þessi ormur fékk sér bita af eplinu

Myndarlegir feðgar

Nokkrir pakkar - Albert teiknaði kortið frá okkur til Hrafns Sölva

Þessi var í afmælisstuði

Ég fékk að lesa fyrir afmælisbarnið sem líkaði það alveg ágætlega

Stoltir foreldrar og ánægður eins árs Hrafn. Ég reyndi nokkuð oft en náði ekki mynd af þeim öllum að horfa í myndavélina! 

Jæja best að koma sér af stað, Albert fer að koma úr skólanum með smá gotterí fyrir okkur í hádeginu. Svo fer ég í vinnuna klukkan tvö til tíu í kvöld og ég vona bara að samdrættirnir haldi sig á mottunni. Það versta við kvöldvaktirnar er að manni finnst stundum lítið verða úr deginum ef maður á að hvíla sig og slaka fyrir vinnu, því maður fer auðvitað beint í þann pakkann eftir vinnu líka. En þessi morgunn er búinn að vera æði svo ég kvarta ekki :)

Friday, September 14, 2012

Heill sé nefdropum!

Og Alberti :)

Albert er búinn að fara í fleiri en 8 verslanir til að finna fallegar smellur í lopapeysurnar sem ég prjónaði á hann og Gunna. Og hann er ekki einu sinni orðinn pirraður. Hvernig fer hann að þessu? Fullkomnu smellurnar voru hvergi til svo við verðum að sætta okkur við að nota lítið sjáanlegar smellur og krossleggja fingurna um að þær eyðileggi ekki heildarlúkkið :)

Alveg er það magnað hvað skapið á mér fer í ræsið þegar ég er svona svakalega kvefuð og nefdropalaus! Um leið og ég var farin að geta andað aftur fann ég hvað þrumuskýið fyrir ofan hausinn á mér varð hvítara og þynnra :D

Sprikli er búinn að vera ofur hress síðustu daga, hann er alltaf að snúa sér! Í gær t.d. fann ég fyrsta hiksta dagsins alveg neðst í maganum, í hádeginu var hann rétt fyrir neðan rifbeinin alveg í miðjunni og svo í gærkvöldi var hann alveg í síðunni hægra megin.  Greinilega brjálað að gera, ætli hann sé ekki að nýta plássið sem hann hefur áður en það verður enn þrengra um hann!

Ljósmóðirin var ofur sátt með mig að hafa lesið Ina May's guide to childbirth og við töluðum smá um fæðinguna og vonandi náum við að komast að á fæðingarnámskeiði. Allt lítur ofur vel út, bumban er spot on á kúrfunni (skoooo!), blóðþrýstingurinn tip top og þyngdaraukningin mín fín. Ég er komin í 9 kg núna! Finn hvað ég er orðin þuuuung á mér og vona að ég fari ekki upp í 18 kg eins og ljósan var að tala um en annars spái ég nú lítið í þessu. Finnst bara magnað hvað ég er búin að þyngjast hratt síðustu vikurnar! Ég var að detta í fyrsta kílóið við 20 vikurnar, svo fóru kílóin ekki að koma fyrr en á svona 23. eða 24. viku (oddly enough um svipað leyti og M&M peanutbutter risapokinn mætti í hús!) en síðan þá hafa þau hrannast inn.

Við ákváðum að minnka ekki við mig vinnuna í bili heldur sjá til hvernig þetta verður og ég get alltaf haft samband við hana eða Hildi, yndislega lækninn okkkar, til að fá vottorð. Þannig að þetta er up to me og ég vil helst bíða aðeins með það, þrátt fyrir að vera farin að fá mörgæsakomment í vinnunni!

Jæja ég ætla að klára að prjóna húfuna á Albert sem ég byrjaði á um áramótin, það er það minnsta sem ég get gert fyrir hann eftir allar útréttingarnar sem ég er búin að senda hann í í dag!

Hér er mynd af Lúsí sem var að leika sér að páskaunganum sínum þegar hann festist í feldinum framan á henni! :D
Held við gætum þurft að klippa hana smá fyrst dótið er farið að festast í henni!

Ekki á toppnum

Hor, hausverkur og hálsbólga. Ugh... Ég er stútfull af e-u ógeðiskvefi, fór í vinnuna í klst í morgun áður en Albert sótti mig því ég var varla að heyra í viðskiptavinum fyrir eyrnabólgunni og svo var orðið vandræðalegt að vera alltaf að setja þá á mute á meðan ég hnerraði eða hóstaði. Þannig að ég ligg bara fyrir í dag, drekk fullt af vatni og passa og reyni að láta mér batna asap.

Ugh nettengingin er að detta út og ég er að springa úr pirringi út af kvefinu þannig að ég nenni ekki að skrifa meira en hér er sæt mynd af Alberti og Lúsí

Þessi tvö eru svolítið uppáhalds

Límmiðarnir á gólfinu eru útlínur baðherbergisins í íbúðinni sem við fáum afhenta á MORGUN! Trúi því varla! Jæja batni batn svo ég verði hress fyrir íbúðina!

Wednesday, September 12, 2012

Hálft barn og hormónar

32 vikur í gær. Mér líður rosa vel fyrir utan grindarlosið auðvitað og svo eru semí-ælingarnar pirrandi alveg en mér finnst ég ekki geta kvartað! Fer til ljósunnar á eftir og hlakka til að koma því frá, vita hvort hún vilji að ég minnki meira við mig og vita hvort bumban sé ekki alveg að mælast samkvæmt kúrfu.

Undarlegt hvað allir vilja kommenta á bumbuna. Hún náttúrulega varð ekkert áberandi fyrr en fyrir svona mánuði síðan (kannski svona 27. eða 28. viku) og síðan þá hafa allir e-ð um hana að segja, misgáfulegt! Bara í gær fékk ég 2 undarleg komment á bumbuna (fékk fleiri, en hin kommentin voru ekki svona skrýtin). Fyrra var "Af hverju ertu að fela krakkann svona? Hvar er eiginlega krakkinn?" og seinna var "What ertu komin 32 vikur? Það getur ekki verið að það sé heilt barn þarna inni, það er örugglega bara hálft barn þarna!" Fallegur visual það! :D Þessi komment trufla mig ekki neitt, finnst bara fyndið hvað fólk bullar út úr sér þegar það veit ekki hvað það á að segja. 

Fólk má kommenta á bumbuna mína eins og það vill, það pirrar mig ekki baun í bala að heyra að hún sé lítil/nett/pen eða hvaaaaða orð sem fólk vill nota yfir það. Það fyndna er að mér finnst hún ekkert svo lítil, ég bara veit að hún telst vera það. Og fólki sem þekkir mig finnst hún heldur ekki vera lítil af því að það veit hvernig maginn minn er vanur að vera! Mömmu finnst hún orðin "obboslega myndarleg" og svo hitti ég Dagnýju í gær í fyrsta sinn í 2 mánuði og hún sagði "vóhóó stóra bumba!"

Dagný einmitt smellti af fyrir mig bumbumynd, ég held undir bumbuna og þá sést hún alveg töluvert betur :)
32 vikur :)

Sprikli er búinn að vera svaka hress í gær og í dag! Hann er vanur að vera vinstra megin í bumbunni, og örugglega með hausinn niður því ég finn hikstann hans alltaf alveg neðst til vinstri. Í gær var hann kominn hægra megin og ég fann hikstann alveg hægra megin í síðunni! Svo í morgun veit ég ekki hvað hann var að gera, bumban gekk í bylgjum og mikið af spörkum sem náðu frá vinstri síðu og alveg yfir á hægri, svo þegar ég stóð upp var hann aftur kominn hægra megin. Brjálað að gera greinilega :D

Ég er í fríi í dag, bara búin að vera uppi í rúmi að lesa "Birth Club" sögur í Appi sem heitir BirthCenter í símanum mínum. Þar var ég að lesa um nokkrar konur í nóvemberhópnum sem fæddu börnin sín of snemma og fæst þeirra náðu að lifa það af og ég fann til með þeim. Þá kemur Albert inn í herbergið af baðinu, búinn að gera sig tilbúinn í skólann, og segir "Ósk, ég ætla að spila fyrir þig lag. Ég veit að þessi tónlistarmaður hefur ekki verið í miklum metum hjá þér, en mér er alveg sama - þú ert það." Svo spilaði hann þetta lag:


...og tárin mín fengu auðvitað að dansa með! Uuugh hvað gerir hann hormóna-óléttubínunni sinni svona snemma á morgnana! :D Fannst samt frekar sætt að honum brá þegar ég fór að tárast, hann vissi ekki hvað ég var meyr og ég held að hann hafi ekki gert ráð fyrir því :P Já svona er nú gaman að vera hormónal og væminn, ég get allavega hugsað mér verri hluti til að lifa með ;)

Monday, September 10, 2012

Barn í maganum

Það er barn í maganum á mér! Í alvöru, ég er búin að finna það sparka í mig! Maginn á mér er orðinn þvílíkt útstæður því barnið er svo stórt að það er ekki pláss fyrir það inní mér! Það fær hiksta, stundum oft á dag og ég finn það bæði með bumbunni og líka ef maður setur lófann á magann! Er það ekki pínu messed up? Mér finnst það.


Á föstudaginn ætluðum við að fara norður en af því að Alberti bauðst aftur að spila fyrir Lindex þá frestuðum við því til laugardags og ég tók að mér kvöldvakt í staðinn fyrir morgunvakt. Mér fannst ágætt að vinna um kvöldið svo ég væri ekki að svekkja mig yfir að fara ekki á karla- og konukvöldið sem var víst mjög skemmtilegt.

Á laugardaginn rúlluðum við svo norður en kíktum fyrst við á Skaganum í skonsukaffi hjá ömmu. Pabbi og Gunni voru að setja upp loftnet fyrir hana og það var gaman að sjá hvað allt er orðið fínt þarna, allt frá Diddahúsi og yfir í grindverk og fínpússaðar tröppur.

Þegar við vorum komin norður fórum við í pottinn og teygðum vel úr okkur fyrir gúrme kvöldmat hjá Hönnu. Ég var alveg búin á því um kvöldið!

Morguninn eftir vaknaði ég við að ég ældi upp í mig (jömm) og brá svo við það að ég hrökk upp og fékk massífan samdrátt! Sprikli var ekki nógu ánægður með þessa meðferð og tók léttan karatedans til að mótmæla! Kósý vakn á sunnudagsmorgni :D

Svona vaknaði ég á laugardaginn, aðeins meira kósý :) (ég fer á milli Alberts og Lúsíar!)

Fórum svo í afmæli til Hrafns Sölva, átum á okkur gat og lékum við afmælisbarnið. Náðum svo að vera á undan veðrinu suður en vorum reyndar næstum lent í árekstri við Staðarskála og vorum alveg ágætis stund að jafna okkur á sjokkinu. Mikið var ég fegin að sprikli var vel varinn inni í bumbunni minni, hvernig verða sjokkin manns ef e-ð kemur upp á og hann situr bara einn í stólnum sínum í aftursætinu?!

Við sóttum einmitt bílstólinn og keyrðum með hann suður og man alive það gerði hlutina raunverulega! En það er heldur betur orðið stutt í þetta svo kannski kominn tími fyrir mig að "get over it", barnið er á leiðinni :P

Ég er búin að fá fullt af samdráttum í dag, í morgun og í kvöld örugglega um 5 eða fleiri á klst en ég er ekkert að hafa áhyggjur af þeim lengur. Ætla að hlusta á gut feeling sem segir að allt sé í góðu :)

Á miðvikudaginn er svo mæðraskoðunin sem ég missti af í síðustu viku og ég er með pínu kvíðahnút í maganum yfir að hún segi að ég eigi að minnka meira við mig út af grindarlosinu :/ En það er kannski ekki vitlaust, ég er farin að sofa svo illa og það er óneitanlega truflandi í vinnunni að vera með stöðugan verk. En við sjáum til hvað hún segir!

Nóg í bili, BÆÆÆ

Thursday, September 6, 2012

Ósk viðutan

Ég man vel eftir Viggó viðutan, en ekki grunaði mig að 31. vika á meðgöngu þýddi að ég myndi verða hann! Ég gleymi öllu, meira að segja umræðuefninu þó ég sé í miðri setningu. Í vinnunni fer ég til að ná mér í vatn og tek veskið mitt með mér í staðinn fyrir vatnsflöskuna, fæ svo skilaboð um að ég hafi skilið veskið eftir hjá ávaxtaskálunum hinum megin í húsinu. Hvað. Er. Í. Gangi?

Í dag tók ég með mér nesti, þ.á.m. dílishj eplasvala sem ég geymdi í ísskápnum. Náði svo í hann þegar ég fór í kaffi, tók hann með mér í matsalinn þar sem ég keypti Trópí sem ég drakk á meðan ég horfði á svalann án þess að fatta neitt.

Verst finnst mér ef þessi viðutanlenska mín er að bitna á öðrum; þegar ég tvíbóka mig eða gleymi að heyra í e-m sem ég var búin að ákveða hitting með, eða ef ég hreinlega gleymi að svara fólki á msn eða í smsum.

This too shall pass er mantran mín núna, ég er ekki svona venjulega heldur í stuttan tíma á meðan ég er að rækta litla persónu. Fingers crossed með brjóstaþokuna! :S

Wednesday, September 5, 2012

Betra er seint en aldrei!

Mig er búið að langa að skrifa niður allt sem er búið að ganga á síðustu mánuðina upp á að eiga það seinna meir, en mér tekst einhvern veginn alltaf að ýta því á undan mér með loforðum um að vera dugleg seinna. Lára lét vaða og hvatti mig til að hætta þessari frestunaráráttu og ég þori ekki öðru en að hlýða :P

Í dag átti ég að fara í 31. viku mæðraskoðun en ljósan var veik svo tímanum var frestað um viku. Ég var ferlega svekkt því ég er búin að safna nokkrum spurningum fyrir hana sem ég er æst að fá svör við.

Fyrst og fremst hefði ég viljað fá ráð / lyf við brjóstsviðanum eða nábítnum sem er búinn að fara stigvaxandi síðustu vikurnar og er orðinn ó.þol.andi núna. Ég bryð Rennie eins og nammi en samt er hann aaaalltaf til staðar. T.d. á morgnana, þá er ég reyndar yfirleitt laus við hann þangað til ég fæ mér morgunmat, sem er kannski jógúrt með kornflexi. Svo næstu klukkutímana eftir mat, sit ég í vinnunni og geri ekkert annað en að æla matnum aftur upp í mig. JÖMM! Rennie slær á, en sagan byrjar aftur næst þegar ég set e-ð í munninn, sama hvort það sé máltíð, ávöxtur eða vatnssopi. Ugh hvað það getur pirrað mig.

Æhh á meðan ég er að pikka er litli sprikli kominn með hiksta - þriðja hikstann í dag! Greinilegt að hann er duglegur að æfa sig að anda :D Finn smá til með honum að vera alltaf með svona mikinn hiksta því mér sjálfri finnst það svo pirrandi þegar það kemur fyrir mig, en það er ekkert smá krúttlegt að fylgjast með bumbunni á meðan hikstinn varir.

Ég fékk lánað bakbelti frá pabba áðan því í dag er fyrsti dagurinn sem ég er illa sofin út af verkjum í mjaðmagrindinni. Snúningslakið frá Söru hjálpar heling, en ég hlakka óneitanlega til að hætta að sofa á svefnsófanum hjá pabba og komast á gormað undirlag þegar við flytjum!

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla að fara og leggja lokahönd á peysuna hans Gunna sem ég trúi ekki að sé loksins að klárast!

En ég ætla að láta fylgja bumbumyndir frá því í gær og í síðustu viku því mér finnst bumban hafa stækkað svo mikið á einni viku. Smáá mygla í gangi en það er alveg afsakanlegt þegar maður er búinn að vera í vinnunni í 10 tíma, right? :P



30 vikur og 31 vika