Við kíktum í smá búðaleiðangur í gær og man alive hvað ég var að njóta þess að vera preggers með bumbuna mína út í loftið. Æðislegt að kíkja smá svona út af og til og viðra sig, ég var auðvitað á tásunum í opnu sandölunum þó það væri blautt og kalt úti! Það er skrýtin tilhugsun að það sé svona stutt eftir en eins og ég sagði við Albert í gær þá er ég mjög fegin að vera ekki orðin óþolinmóð, sprikli er velkominn að vera í bumbunni eins lengi og honum hentar, þó það væri mánuður í viðbót væri það fine by me! Eiginlega vonast ég til þess að hann flýti sér ekkert út því það er svo gaman að fá loksins að njóta þess í botn að vera svona bumbulína :) Albert vill helst að hann fæðist á laugardaginn því þá verður kennitalan hans 10.11.12. og ég held að hann komi ekkert fyrr en eftir helgi. Spennó!
Í dag fórum við og keyptum jólagardínur í eldhúsið. Við erum mikið búin að spá hvernig gardínur við ættum að fá og þjáumst af valkvíða svo við ákváðum að fá okkur bara ódýrar jóla sem eru (af augljósum ástæðum) mjög tímabundnar.
Snýti snýt... Ég snýti mér hundrað milljón sinnum á dag! Ekki vissi ég að það væri eitt af einkennum meðgöngu!
Í gærkvöldi vorum við boðin í kjötsúpu til mömmu ásamt Evu og pabba. Ómægúddness hvað það var gott. Ég steinrotaðist á sófanum eftir matinn á meðan við fengum að setja sængina í þurrkarann hjá mömmu. Svo fórum við í smá bíltúr og fengum okkur dílish bragðaref (jarðaber, tromp og oreo) sem við borðuðum heima í kósý fílíng. Ég var með frekar mikið af reglulegum samdráttum en ekkert sárt neitt. Albert var að fara í próf í morgun og ég hlýddi honum yfir þangað til aðeins of seint, við fórum að sofa um 2 býst ég við.
Samdrættirnir héldu áfram í nótt, pirrandi að vakna alltaf við þá en samt allt í góðu því þeir voru ekkert sárir. Þangað til 6.30. Þá vaknaði ég við einn sáran! Og svo annan nokkrum mínútum seinna. Fór fram og þá var maginn á mér í ruglinu og hann er búinn að vera það í dag, úthreinsun heitir það víst og er leið líkamans að undirbúa sig fyrir fæðingu. Það blæddi líka smá og er búið að gera það af og til í dag, heyrði í ljósu og hún sagði að það væri í fínasta lagi svo lengi sem það kæmi ekki meira en matskeið af tæru blóði.
Frá seinnipartinum í dag er ég svo búin að vera með frekar reglulega fyrirvaraverki, á svona 7 mínútna fresti og þeir eru sko sárir. Þeir eru alltaf í svona mínútu í einu og eru eins og alda sem kemur yfir mann. Fyrst kemur smá seiðingur, svo finn ég bumbuna byrja að harðna og harðna þangað til hún verður glerhörð, svo kemur sár túrverkur sem nær alveg frá neðst og upp alla bumbuna. Og af því að ég er með svo spes líkama þá finn ég stundum fyrir verknum í iljunum líka :P
Ég er alls ekki að stressa mig á þessu og okkur liggur ekkert á að hringja niður á deild eða neitt þannig, ég hef það á tilfinningunni að verkirnir detti niður með nóttunni. Maður er búinn að heyra um svo svakalega margar frumbyrjur sem halda að þær séu að fara af stað og verða spenntar og mæta niðureftir og svo gerist ekkert, jafnvel í marga daga. Og þar sem þetta er bara ein mínúta af hverjum 8 þá get ég alveg tekið smá meira á mig áður en við gerum e-ð í því ;)
Albert fór í skólann í kvöld og ég var heima á meðan í kósý fílíng með kisunum og fór að prjóna vettlinga á litla til að matcha við heimferðarsettið.
Ofur næs, Krummi úti í horni að hrjóta og Lúsí lúrir hjá bumbunni á meðan ég prjóna
Ég prjónaði bara eftir auganu og þetta er svo lítið og auðvelt að ég kláraði þá í kvöld, Albert skolaði svo úr þeim fyrir mig og núna liggja þeir og þorna með húfunni yfir nóttina.
Alles klar!
Hmmm vandræðalegt, það er greinilega svolítið vel hljóðbært á milli íbúða og við eigum greinilega mjög ástfangna nágranna! :$
Jæja segjum þetta gott í bili! Á morgun förum við svo með loðbörnin okkar til doksa í bólusetningu og ætlum í leiðinni að kaupa fatalit til að lita helminginn af taubleiunum. Nighty! :)
No comments:
Post a Comment