Tuesday, October 30, 2012

ooog aftur

Klukkan er 5 og ég næ engan veginn að sofna aftur eftir pissuferð. Brjóstsviði, hausverkur og grindin í þetta sinn. Ég spæni upp Rennie pakkanum og fæ mér alltaf extra tyggjó eftirá til að losna við sódabragðið.

En í gær var ég komin 39 vikur og tók ég mynd af bumbunni inni á baði í tilefni af því:

Smá mygla í gangi eftir langan og syfjaðan dag!

Kláraði loksins að skola úr heimferðarbuxunum og sokkunum, núna þarf ég bara að gera húfu. Mig langaði að gera jakka við en ég efast um að ná því og svo er ég ekki enn farin að finna hringprjónatöskuna mína :(

Svo toppuðum við kvöldið með því að gera kisurnar fínar, greiddum þeim báðum svo nú eru þau silkimjúk og ekki einn einasti flóki á Lúsí :)

Sprikli er greinilega glaaaaðvakandi, bumban mín hendist til og frá á meðan ég pikka! Stundum sparkar hann svo fast í mig að það er virkilega óþægilegt, sér í lagi ef hann bombar í pissublöðruna og hún er full :P

Ég náði að sofna í gærkvöldi meðan Albert fór í skólann og það var alveg svakalega gott. Enda var ég rangeyg liggur við það sem eftir var af kvöldi, átti alveg erfitt með að fókusa! Ég vona að ég nái að sofna aftur núna í sófanum áður en það er kominn "tími til að vakna" því ég var eins og draugur í gær í búðarleiðangrinum okkar.

Áiiii hausinn minn... En ég sá fyrirspurn á ljósmóðir.is í gær um hausverk í enni á 38. viku (sem er mjög svipað mínum) og þá var hann skrifaður á þreytu og ráðleggingin var að hvíla sig vel. Sem er það sem ég ætla að reyna núna. Over and out!

Andvaka

Og ég ákvað að dröslast loksins framúr í staðinn fyrir að liggja endalaust í þrjóskunni þangað til mér er orðið illt alls staðar. Nóttin er búin að vera ansi löng með mörgum pissuvöknum og oj barasta nábít! Gaman að smakka á því klukkan 7 sem maður borðaði kl 21 kvöldinu áður :S Vooonandi læri ég loksins að hætta að borða á kvöldin eftir þetta! Held samt að það sé frekar magnið sem er vandamál frekar en tímasetningin :$

Ég er farin að fá alltaf hausverk á morgnana sem fer svo þegar líða tekur á daginn. Þunn án þess að drekka! Stuuuuð...

Sprikli er búinn að vera voða duglegur í bumbunni, alltaf að tjútta í góðum fílíng. Mér finnst svo sætt að hann byrjar oft að sprikla þegar hann heyrir röddina hans Alberts.

Þegar maður er andvaka oft í langan tíma á nóttunni fer hugurinn á alls konar undarlega staði. Ég fer oft að hugsa hvernig sprikla líði í bumbunni og leiði hugann að því hvernig karakter hann verður þegar hann kemur út. En hvað ef hann verður ekki heilbrigður? Hvað ef hann erfæðist svo holgóma að hann á erfitt með að kyngja? Eða ef hann verður blindur eða heyrnalaus? Hvað ef hann verður með downs heilkenni með tilheyrandi heilsukvillum og þroskaskerðingu? Hvað ef hann verður einhverfur og mun hata líkamlega snertingu? Hvað ef hann verður með hjartagalla? Við vorum jú send úr einni mæðraskoðuninni asap á spítalann í mónitor því hjartað hans var að slá svo undarlega.

Auðvitað er ekkert sem maður getur gert nema vona það besta og treysta á að líkurnar séu manni í hag og sem betur fer eru svona pælingar alls ekkert að ásækja mig.

Mikið er ég fegin að vera með áskrift að fjölvarpinu þegar ég get ekki sofið! Elska þætti eins og how it's made þó ég endi nú oftar á að horfa á Kardashian fjölskylduna :$

Jæja ég ætla að fara að prjóna hinn sokkinn og bíða eftir að Albert vakni eftir klukkutíma :)

Monday, October 29, 2012

Munnræpa

Saddur.... Ég var að koma úr beljufundi hjá Eddu Lára og man alive hvað ég læri ekki af mistökunum um að borða of mikið á kvöldin! Égetsosvariða... Það eru kökur og súkkulaði og ber að vella út úr eyrunum á mér! Það er allavega hægt að bóka það að ég mun þurfa EXTRA háan kodda í nótt því ég mun smakka á kræsingunum þangað til í fyrramálið :P

Núna er heldur betur búið að róast um hjá okkur. Síðustu dagar hafa farið í þvottafjallið hjá mér, ekki hefði mig grunað að við værum búin að safna svona miklum þvotti undanfarið! Það eru enn fullt fullt af verkefnum sem við reynum að saxa niður smám saman, en Albert er auðvitað á fullu í skólanum og það er ekki allt sem ég get gert sjálf því miður. Ég geri það sem ég get en reyni líka að passa grindina mína og tek mér breathers alltaf af og til því ég vil ekki keyra mig út lengur. 

Heilsan er nokkurn veginn við það sama, en það munar alveg svakalega miklu að þurfa ekki að sitja allan daginn heldur get ég labbað um eða lagst niður ef mér finnst ég þurfa. Við vorum að kaupa 96 stykkja Rennie pakka og það var æðisleg tilhugsun að vita að það er síðasti pakkinn á þessari meðgöngu! Næsta skref er svo að læra að hætta að borða á kvöldin svo næturnábíturinn hætti og líka svo ég blási ekki út svona á síðustu metrunum!

Mér finnst meðgangan búin að ganga mjög vel og er búin að fíla mig í botn og er hreinlega ekki tilbúin að þessi tími sé bráðum á enda. Vonandi leyfir sprikli lilti mér að njóta þessa tíma aðeins lengur, svona fyrst ég er farin að hafa tíma til þess :P En já, mér finnst þetta búið að ganga allt mjög vel og finnst ég ekki samsvara mér í bumbuhópnum þar sem allar eru að tala um hvað þeim líður illa og að þær geti ekki beðið eftir að þetta klárist. En í beljufundi áðan þegar ég var að hitta vinkonur mínar sem ég hef ekki hitt í mjög langan tíma fannst þeim hljóma hræðilega hvernig allt er búið að vera hjá mér. Blæðingar í byrjun, flökurleikinn, samdrættir, grindargliðnun, svefnleysi, íbúðaframkvæmdir, nábítur og fyrirvaraverkir. Jú kannski ef maður setur þetta allt svona saman þá hljómar þetta ekki skemmtilega, ég hef hreinlega ekki hugsað út í það þannig. En ég held að hugarfarið skipti öllu máli í þessum efnum, mér finnst ég svakalega heppin og tek glöð við öllum þessum kvillum því ég veit að þeir eru mjög tímabundnir og þeir færa mér ómetanleg verðlaun á endanum. </væmn>

Þær í beljó vildu meina að fyrirvaraverkirnir gætu mögulega minnkað ef ég slakaði meira á. Þó ég sé hætt að vinna og framkvæmdirnar að mestu búnar þá er ég samt á fullu allan daginn að undirbúa og ég er ekki enn komin í þann pakkann sem margar fara í að vera með tærnar upp í loft að chilla og bíða eftir barninu. Vonandi gefst tækifæri til þess á næstu dögum, það væri gaman að leggja sig á daginn ef maður sefur illa og athuga hvort fyrirvaraverkirnir myndu minnka.

Í gær var date night hjá okkur Alberti :) Á meðan við borðuðum saman heima lét Albert renna í bað handa mér, svo tók ég sjálfa mig í mani- og pedi og eftir það skelltum við okkur í bíó þar sem við vorum tvö ein í salnum, ferlega kósý. Ótrúlega gaman að gera svona venjulega hluti aftur! Nóttin var reyndar löng út af kvöldátinu (skamm skamm Ósk) og grindin er ekki sátt með setuna í bíóinu í gær en það var totally worth it! Við erum meira að segja að plana að fara út eitt kvöld í vikunni og hlusta á lifandi tónlist. Get ekki beðið! :D

Í dag hringdi ég í Fæðingarorlofssjóð og fékk að vita að umsóknin um framlengingu á orlofi hefði verið hafnað því ég er óvinnufær í minna en mánuð fyrir fæðingu. Þannig að VR eru þau sem eiga að aðstoða okkur. VR sem vísaði mér burt og sagði mér að tala við Fæðingarorlofssjóð. GAH! Þannig að ég tók ööööll gögn saman, ásamt synjuninni og sendi þetta allt á VR og núna er spennandi að heyra frá þeim.

Samdrætti samdrátt... Svakalega hlýtur legið á mér að vera í góðu formi fyrst það er alltaf að æfa sig svona mikið.... Svo fyndið að sprikli lætur spörkin oft dynja á mér eftir kröftugan samdrátt, ætli honum finnist þetta nokkuð þægilegt greyinu!

Munnræpa.is... Albert kveikti á X-factor þegar ég byrjaði að skrifa og ég veit ekkert hvað er komið á blað! Þá er komið gott :)

En sjáiði hvað músunum mínum líður vel á nýja staðnum!


Saturday, October 27, 2012

Fyrsta nóttin

JEIJ! Við erum flutt inn! Sváfum fyrstu nóttina okkar í Teigó í nótt og hún var bara nokkuð góð! Ég fékk smá víðáttubrjálæði að sofa í rúmi í fyrsta sinn síðan ég-veit-ekki-hvenær (við settum 120cm dýnu ofan á svefnsófann hjá pabba og erum búin að sofa á henni síðustu mánuðina) en ég held það verði fljótt að venjast. Eini gallinn var að við gátum ekki slökkt á ofninum inni í herbergi svo mér varð aaansi heitt, en við opnuðum gluggann svo það varð allt í lagi.

Þvotturinn okkar er heldur betur búinn að safnast upp undanfarið, enda erum við alltaf búin að vera á leiðinni að flytja inn. Síðan í gær er ég með í fjórðu vélinni og karfan er enn full! OG það eru 3 pokar með barnafötum hjá mömmu. Mæ ó mæ.... En mikið er gott að vera að gera VENJULEGA hluti loksins eins og að þvo þvott og vaska upp! Ég er meira að segja búin að vera að hekla! OG við horfðum á 2 þætti í gærkvöldi! (Ég reyndar horfði á seinni þáttinn í gegnum augnlokin mín, góður hæfileiki) Þannig að allt madnessið er á undanhaldi og hversdagsleikinn að taka við. Verði hann hjartanlega velkominn :)

Kisurnar taka nýja staðnum nokkuð vel, Lúsí er frekar lítil í sér reyndar og límist við fæturna manns en Krummi öllu brattari, alveg eins og við bjuggumst við. Þau fengu bæði nýjar ólar, Krummi með mesta endurskini sem til var) og Lúsí fór í klippingu og er alsæl með að vera með styttri feld og flókalaus. Hún er svo ferlega sæt svona happy, alltaf að henda sér á bakið og nýtur þess að teygja á hár- og flókalausa maganum sínum.

Call me hormonal en mér fannst smá erfitt að fara úr Stóragerðinu í gærkvöldi og skilja pabba aleinan eftir. Leið eins og ég væri að flytja að heiman all over! Mjög kjánlegt að vera lítill í sér yfir svona e-u, sérstaklega þar sem við buðum honum í mat í kvöld og hann er í 10 mínútna fjarlægð, en íbúðin var bara e-ð svo tómleg þegar við vorum að fara. Ég var nokkuð fljót að jafna mig enda held ég að pabba finnist frelsið alveg ágætt, við erum alveg ágætis pakki, ólétta konan, kettirnir tveir og Albert :D

Sprikli er hress í bumbunni, spriklar svo fast stundum að mér finnst að hann ætli út! Og ef að ég myndi lyfta bolnum mínum ætti ég að geta séð tásur! Spörkin trufla mig annars ekkert, þau eru yfirleitt kærkomin og ég get eytt mínútum saman í að stara á bumbuna þegar hún hendist til og frá. Á kvöldin treður hann sér reyndar stundum undir rifbeinin mín og þá getur verið ansi mikill þrýstingur innan frá, en ekkert sem ekki er hægt að laga með stórum púða.

38v mæðraskoðun gekk mjög vel, blóðþrýstingurinn tip top eins og alltaf (held hún hafi sagt 110/75), þyngdin mín fín og legbotninn 35. Það er eðlilegt að hann sé svona lár því sprikli er svo fastskorðaður og ég er hávaxin. Ég fékk hana loksins til að athuga með blóðmagnið mitt upp á hvort ég ætti að taka járn og jújú, fullur skammtur takk fyrir. Hefði verið næs ef hún hefði samþykkt að tékka á þessu fyrir 2 vikum, en nóg um það. Næsta skoðun er svo á settum degi. Sem er eftir 10 daga. Ómægúddness!

Albert er á námskeiði alla helgina, e-r svaka flottur erlendur gestakennari er að kenna strákunum í kennaradeildinni hvernig á að kenna. Eða eitthvað þannig :P Planið mitt er að klára loksins buxurnar sem ég er búin að prjóna á sprikla (set mynd næst vonandi) þvo þvott eins og enginn sé morgundagurinn og strauja eins mikið og grindin mín leyfir en hún er óhressari með hverjum deginum. Mamma kíkir líka mjög reglulega í heimsókn og er hún að vinna í því núna að falda stofugardínurnar sem við fengum frá afa. Þaaað sem maður lætur dekra við sig sko... :P Svo auðvitað matur í kvöld og hver veit nema við förum actually út úr húsi aldrei þessu vant! Ég á tvo frímiða í bíó og allt, kannski maður verði bara ungur og leiki sér!

Kv. Bollan

Tuesday, October 23, 2012

38 vikur

Hikk, hikk, hikk... greyið litla alltaf með hiksta, greinilega á fullu að æfa sig að anda og kyngja!

Komin 38 vikur í dag og er varla að trúa því! Mér tókst að ná mér í e-a magakveisu og er búin að vera á varabatteríinu í dag út af henni. EN ég slapp samt ekki við myndatöku!

Albert var svo lengi að fullkomna uppstillinguna að módelið var löngu búið að missa athyglina :$

Bollan sjálf

Síðasta myndin af mér í vinnugallanum (tekin um helgina), ég var svo montin að komast ennþá í hann að ég varð að láta mynd fylgja :P 

Bumban tók vaxtakipp í þessari viku held ég, mér er búið að finnast það og Albert hafði orð á því í morgun líka. Ég er einmitt búin að vera að fá svolítið af togverkjum svo það eiginlega hlýtur að vera. Ætli það styttist ekki í að húðin mín "springi" og ég fái sebrarendur á magann!

Albert er úti í skúr að æfa sig fyrir prófið á morgun en við vorum að koma heim úr farsælum bílstólaleiðangri. Við s.s. vorum löööngu komin með bílstól sem átti að duga allavega ár í viðbót, svo þegar Albert var að festa beisið í bílinn var ég að dúllast með hann og sá að það stendur skýrum stöfum á honum "DO NOT USE AFTER DECEMBER 2012". Sjitt! En við fengum fínan Graco stól með base og ungbarnainnleggi á 7000 kall og áður en við keyptum hann fengum við að dobbúltékka á endingunni og jújú hann rennur ekki út fyrr en lok árs 2013. Hjúkket! Núna þurfum við bara að þrífa hann og skella honum í bílinn :)

Mér er búið að líða frekar vel bara, auðvitað væri gaman að geta sofið meira og sleppt því að vera alltaf með verki í stoðkerfinu en ég held það sé bara partur af programmet svo ég get ekki kvartað. Á morgun fer ég í mæðró og þá SKAL ég muna eftir því að suða í henni að mæla járnið mitt, þolið mitt er eins og hjá níræðri manneskju! :D Eða mér finnst það allavega, en svo þegar ég ber mig saman við aðrar bumbur á svipuðu reiki þá tala þær allar um að vera búnar á því á kvöldin eða eftir verslunarleiðangur, þannig að kannski er ég að setja of miklar kröfur á þolið mitt. En æ fyrst það er svona lítið mál að mæla járnið (það er víst bara stunga í puttann!) þá sé ég ekki að það saki að tékka.

Sprikli endurtók leikinn frá því á milli síðustu mæðraskoðana. Hann er búinn að vera á undarlegustu stöðum síðustu vikuna, ég fann hann hiksta en ég gat engan veginn staðsett hann! Það var eins og hann væri í felum lengst inni í mér hreinlega. En, deginum fyrir mæðraskoðun er hann að sjálfsögðu kominn í gömlu góðu stellinguna og sparkar spörkum sem ég þekki vel. Það er góð tilfinning að hafa hann á gamla staðnum, ég fann hreyfingarnar hans svo illa þegar hann var á þessu ferðalagi.

Ég er farin að fá fyrirvaraverki, dadaDAMM! Ómægúddness hvað það er sárt. Vakna stundum við þá, þeir eru eins og samdrættir á sterum. Alveg þannig að ég þarf að einbeita mér að því að hreinlega leyfa sársaukanum að hafa sinn gang og líða hjá. Alls ekki búnir að vera margir sem betur fer, koma alltaf inn á milli venjulegu samdráttanna sem eru trylltir eins og alltaf, sérstaklega ef ég dirfist að reyna hið minnsta á mig!

Í dag var stór dagur í íbúðinni. Pabbi og Albert fúguðu í gær og í dag settu þeir klósettið upp, ásamt handklæðaofninum og hurðinni að baðinu. Vaskinn ætla þeir að setja upp á morgun vonandi og þá er nú bara snitt snatt eins og spegill og dúll sem þarf að græja, ekkert því til fyrirstöðu að við gistum nóttina. Reyndar er ekkert því til fyrirstöðu í dag heldur, en við ákváðum að vera hér allavega eina nótt í viðbót aðallega út af kisunum, upp á að vera búin að gera meira hómí þegar við færum þau yfir.

Hlunkurinn minn að tapa sér úr elskulegheitum

Á morgun fer ég með Lúsí í klippingu þar sem við ætlum að raka á henni magann. Hún er farin að fá fleiri flóka á magann og smá á síðurnar líka undanfarið en það sama gerðist líka síðast þegar við stóðum í flutningum, þá flæktist hún öll greyið svo við ætlum að grípa snemma inn í og fyrirbyggja að þetta fari í e-ð óefni.

Jæja best að fara að prjóna svo ég klári nú þessar blessuðu buxur einhvern tíma!

Sunday, October 21, 2012

End of an era

Síðasta flísin var lögð í gær. Ég trúi því varla. Þetta var nú meiri geðveikin! Við keyptum mósaíkflísar á klósettkassann og baðkarsbrúnina og þannig flísar koma á mottum eins og ég setti inn mynd af um daginn. En á hliðunum á klósettkassanum og alls staðar á jöðrum þarf að leggja hverja flís út af fyrir sig. Síðustu tvo dagana erum við búin að þekja baðkarsbrúnina og kassann, að miklu leyti flís fyrir flís. Fyrir flís fyrir flís fyrir flís. Og ekki má gleyma að ca. þriðju hverju flís þarf að sérsníða þannig að þá þarf að mæla hana og merkja, hlaupa út með hana þar sem pabbi eða Albert skera hana, svo þarf að bera á hana lím, leggja hana á og koma fyrir stoðum svo hún sitji á réttum stað. Næsta flís. (!) Geðveiki segi ég og skrifa, klikkun. EN þetta er búið! Við tókum tæpa 12 klst í þetta í gær og núna er ekki ein einasta flís eftir. JEIJ!

Í dag ætlar Pálmi að koma og fúa með Alberti og Dagný ætlar að koma líka og við ætlum að dúllast í barnaherberginu. ENGIN líkamlega átök fyrir mig í dag, dagurinn verður tekinn í allsherjar bötnun fyrir aumingja mjaðmagrindina mína eftir erfiða helgi. Akkúrat núna er ég undir sæng, nýkremuð og fín eftir allt of langa sturtu og bíð eftir að Albert komi inn og gefi mér að borða :P Hann er nefninlega úti í skúr að þrífa bílinn og gera hann babyready.

Ég er í prjónafílu. Mjög þroskað hjá mér :P Mér var farið að ganga nokkuð vel að prjóna buxurnar á sprikla og þurfti að kaupa meira garn. Við fórum í Hagkaup og keyptum dokku sem ég byrjaði svo á úti í skúr á meðan ég hlustaði á Albert æfa sig á fóninn. Nema hvað að innvolsið í dokkunni var allt í flækju og hnútum. Geðheilsan mín var fljót að falla og ég urraði og glefsaði svo Albert tók sig til og reyndi að losa þetta. Nokkrum dögum seinna hefur okkur enn ekki tekist að leysa flækjuna, svo núna er ég í fílu og prjóna ekki neitt! Þetta verður verkefni kvöldsins :)

En það er kannski ágætt að ég sé ekki búin að vera að prjóna, það er svo pirrandi að prjóna úr svona fíngerðu babygarni þegar puttarnir eru allir í siggi eftir steypuna (flísalímið). Ég tók mynd af puttunum mínum um daginn eftir fúuna, það var eins og hendurnar mínar væru orðnar 100 ára! Allar í hrukkum krumpum, enda var ég maaarga daga að ná nöglunum fínum aftur eftir þetta.

Fúufingur með áföstum sorgarröndum

Sprikli er búinn að vera rólegur síðustu 3 daga. Venjulega er rosa partí í bumbunni og allt á fullu, en núna er það meira eins og eitt og eitt pot og smá hnoð. Ég hef ekki áhyggjur af þessu því hann er búinn að færa sig til í bumbunni, í nótt fann ég að hann var með hiksta hægra megin í bumbunni og einhvers staðar lengst inni. Hann er nefninlega vanur að liggja alveg yst í bumbunni, neðst til vinstri og sparka svo til hægri. Núna er hann einhvers staðar að fela sig þarna lengst inni :)

Það er góð tilfinning að hlutirnir séu að smella saman núna, allt að verða babyvænt loksins og svona. Þó ég haldi að ég muni ganga framyfir er það samt óþægileg tilfinning ef samdrættirnir eru orðnir svakalega harðir og margir og ekkert tilbúið. Og alltaf að hugsa plís plís plís ekki missa vatnið strax, ekki missa vatnið strax! Ef fer sem stefnir gætum við þess vegna gist í íbúðinni í kvöld í fyrsta sinn! Sjáum til :)

Friday, October 19, 2012

Málningarmyndir!

Albert er úti í skúr að blása og æfa sig fyrir próf í næstu viku, ég sit dúðuð undir sæng umkringd prjónadóti, drykkjarföngum, m&m peanutbutter (pokinn lifir ENN!), bugles og restinni af Nóa jólakonfektinu sem datt óvart ofan í innkaupakerruna mína um daginn og svo borðuðust óvart allir góðu molarnir þannig að núna situr Albert uppi með piparmyntuna :P Með þessu áframhaldi verð ég 150kg í lok þessarar meðgöngu en sem betur fer verð ég snögg að ná því af mér því það er ekki eins og það taki við fjöldinn allur af afmælum og jólum og áramótum og og og... no wait.. :O

EN núna er kominn tími á myndir af málningarvinnunni okkar. Ég var búin að setja inn "before" myndir, þessar eru svona af work in progress, en ég sé að við höfum ekki verið nógu dugleg við að taka myndir þegar verkinu er lokið! Og núna er öll íbúðin á haus, verkfæri og ryk alls staðar, þannig að "after" myndirnar verða að bíða aðeins betri tíma :)

Hríðskotabyssuveggurinn og tengdapabbi að pússa spatlið

Tengdó að pússa á fullu og Albert málar loftið

Pálmi vinur Alberts kom og hjálpaði við að setja "silkigráan", litinn sem við völdum að hafa á allri íbúðinni með hvítri rönd efst. (Svo koma hvítir gólflistar vonandi fljótlega!)

Albert var ekki ánægður með græna litinn svo hann ákvað að gera hann gráan

Fyrst köttar maður með grunnlitnum yfir málningarteipið, svo litaða litnum, þá kemur falleg lína :)

Vinnandi fólk! Eva úti í garði að vinna meðan Albert gerir einn vegginn í stofunni dökkan

Arndís kom og skellti sér í hjónaherbergið þó hún hafi nú varla tímt að mála yfir þennan fallega gula :P Við slepptum því að mála vegginn hægra megin við hana því við ætlum að setja veggfóður þar.

Stína hjálpaði helling í eldhúsinu, hennar djobb var að lakka eldhúsinnréttinguna hvíta eftir að búið var að grunna hana. Pabbi er að ná græna ofninum niður.

Maggi batman er búinn að vera rosa duglegur að koma og hjálpa, hér eru hann og Albert í eldhúsinu

Ofninn kominn út, á þessari mynd sést litadýrðin sem fengið hefur að njóta sín á honum yfir árin

Eva var sett í að skafa málninguna af ofninum, e-ð sem við dauðsáum eftir að byrja á því það var auðveldast að mála bara beint yfir óskapnaðinn

Stína á fullu í lakkinu, ég kom ekki nálægt eldhúsinu meðan þetta gekk á því maður varð hífaður held ég bara af gufunum! Enda undi hún sér vel þarna... :P

35 vikna bumba og Stína að þykjast eiga eitthvað í hana

Alberti fannst töff að fá sér hvítar lakk-strípur

Einn ##$%$% ofninn, sjúklega mikil vinna að skrapa þetta af honum!

Brúni liturinn sem við völdum á einn vegg í barnaherbergið í prófun

Klína bara nógu miklu á þetta!

Eldhúsið orðið hvítt og Albert über sáttur með það. Versta er hvað karrýgula borðplatan stelur sviðsljósinu og við vitum ekki hvernig við getum lagað það :S

Eins og ég segi er ég ekki með neinar "eftir" myndir ennþá, en þær koma :)

Wednesday, October 17, 2012

Búmbumyndir

Núna er mest allt dótið okkar komið upp í íbúð en við búum enn hjá pabba. Þetta felur í sér ýmsa galla, t.d. vantar mann stundum föt sem komin eru uppeftir, nú eða SNÚRU til að geta loksins tæmt myndavélina og dritað inn myndum af íbúðinni!

En ég var komin 37 vikur í gær og við mynduðum það auðvitað í bak og fyrir. Ég hef svosum aldrei gefið mig út fyrir að vera mikill tan-man en mig langar samt að taka það fram að það var alveg svaaakaleg birta þarna enda myndirnar teknar að degi til aldrei þessu vant! :P

Ein knúsumynd

Ein berbumbu-venjuleg

Og ein  þar sem ég sýg bumbuna inn! Soldið fyndið að hugsa til þess að það sé þriggja kílóa barn þarna framaná! 

Ég vona að læknirinn hafi samband við mig í dag því VR vísaði mér frá í gær þegar ég fór með beiðnina um sjúkradagpeninga frá henni. Mér var bent á að hafa samband við fæðingarorlofssjóð upp á að fá framlengingu á fæðingarorlofi og fyrir það þarf maður einhvernvegin öðruvísi vottorð frá lækninum en það sem ég er með. Red tape all the way sko. En þegar ég var hjá henni gleymdum við að tékka á járninu hjá mér, en undanfarið er þrekið mitt orðið sama og ekki neitt og mig svimar stundum og er alveg búin á því. Hún var mjög heit fyrir því að tékka á járninu (ólíkt ljósunni sem sagði að þetta væri bara því það væri stutt eftir hjá mér) en svo bara gleymdist það í allri vottorðamaníunni.

Í gær tók ég bara 2 rennie allan daginn! OG ég vaknaði hvorki upp við ælu í nótt né í fyrri nótt. Vonandi er það ástand sem er komið til að vera, fingers crossed. Enda er drengurinn kominn leeeeengst niður í grind og ég finn vel fyrir honum þegar ég er að labba, finnst stundum eins og ég þurfi að halda undir bumbuna svo hann plompsi hreinlega ekki út. Hvað væri það samt næs? Done and done!

Ohh hvað ég vona að við náum að flytja inn um helgina. Mig er farið að langa svo mikið að geta gert allt tilbúið fyrir hann, sett fötin í kommóðuna, gengið frá skiptiborðinu, sett utan um vögguna og svona. Við vorum að fara yfir fötin hans í gær og hann mun svo sannarlega ekki skorta samfellur. En hann þarf væntanlega að vera í e-u utan yfir samfellurnar svo við þurfum að skoða buxur og sokkabuxur fyrir hann. Svo er ég búin að setja í fimmta gír fyrir buxurnar sem ég er að prjóna fyrir hann til að fara í heim af spítalanum en þær eru ansi stórar svo hann ætti að geta notað þær e-ð lengur en þennan eina dag vonandi :)

Planið í dag er að með Alberti upp á spítala í smá rannsókir út af verki í brjóstinu, svo VONANDI náum við að finna drauma flísarnar svo við getum VONANDI hent nokkrum upp svo við getum VONANDI klárað að flísaleggja á morgun. Núna verða fingurnir sko krosslagðir sem aldrei fyrr!

Tuesday, October 16, 2012

Full term - full stop!

37 vikur í dag! Sem þýðir að ég er full term og ef ég fer af stað þá má ég eiga á Hreiðrinu og allt! Og við ekki enn flutt í íbúðina... Ræræræææ smáatriði smáatriði :P

Ég fór til doksa í gær út af grindinni minni, hún sagðist varla þurfa að skoða mig en þurfti samt að gera það for the record og niðurstaðan var hringlandi grindagliðnun og ekki meiri vinna fyrir mig þessa meðgönguna takk fyrir góðan daginn bless. Þannig að ég fór út með sjúkradagpeningavottorð, beiðni í sjúkraþjálfun og vottorð fyrir vinnuveitanda.

Bossinn tók þessu betur en mig hefði nokkurn tíma grunað, knúsaði mig 3x sinnum og bauð mér að hætta deginum fyrr. Ég s.s. ætlaði að hafa síðasta daginn í dag, en hann sagðist vera búinn að vera með samviskubit að horfa á mig í vinnunni, augljóslega kvalin, og hvort ég vildi ekki bara hætta samdægurs! Uuuu júúújú, auðvitað vildi ég það og sleppa við 5 klst af sársauka! Þannig að það var ákveðið með klst fyrirvara að þetta væri síðasti dagurinn minn! Á þeim klukkutíma lenti ég í hálftíma símtali við konu með 100 ára tölvu með íslensku stýrikerfi sem hún kunni ekkert á og wifi vandamál, reyndi að ganga frá borðinu mínu, setja auto-reply á póstinn minn og kveðja samstarfsfélagana. Skrifaði svo undir samning varðandi fjarveruna mína og kvaddi bossinn sem lét mjög falleg orð falla: "Mig langar bara að þú vitir að þú ert frábær starfsmaður og veistu, mér finnst þú bara alveg æðisleg!". Ekki leiðinleg kveðja það!

Þetta var allt gert á hálfgerðum hlaupum því við Albert vorum orðin of sein upp á fasteignasölu, en við fengum afsalið í hendurnar í gær! Woohoo! Þeim tókst reyndar að rukka okkur SURPRISE 80 þúsund krónum meira en þau voru búin að tala um, en sem betur fer erum við búin að vera dugleg að safna svo það tókst ekki að hagga gleðinni okkar.

Í gær var sumsé góóóður dagur og fögnuðum við honum með því að Albert eldaði steikur handa okkur þrímenningunum. Svo eyddi ég kvöldinu í að prjóna á sprikla með ekkert sigg (allavega miklu minna!) á puttunum og hjálpa Alberti með ritgerð sem hann þarf að skila í dag. Ég þarf liggur við að sitja á puttunum mínum því það er svo freistandi að skrifa hana bara fyrir hann og ég hef tímann en ekki hann! En auðvitað geri ég það ekki :)

Klukkan er hálf 11 og ég er búin að vera vakandi frá 6. Mig langaði svooo mikið að fara framúr þegar ég vaknaði! Mig langaði að fara í sturtu, kíkja aðeins meira á ritgerðina hjá Alberti, blogga smá, þrífa baðherbergið og ganga frá þvotti. Aðeins of hyper í huganum. En ég ákvað að bíða allavega þangað til kallarnir væru farnir á fætur og enn og aftur var ég dauðsfegin að vera með æfóninn minn.

En að íbúðinni!

Moving day var á sunnudaginn og gekk rosa rosa vel þökk sé æðislegum vinum Alberts og auðvitað pabba og Alberti sjálfum. Á meðan þeir hömuðust við að bera og ferja tók Lára mig á Hótel Sögu þar sem við tróðum óléttu magana okkar fulla af alllls konar gúmmulaði og sko MIKIÐ af því. Jeremías minn, ég held að kransæðarnar mínar séu enn að jafna sig eftir beikonfjallið!

Ég fór svo með veitingar fyrir sveitta og þreytta burðarmenn upp í Teigó þar sem mamma joinaði okkur og vorum við að dúllast fram undir kvöld að ditta að íbúðinni. Við mamma að taka upp úr kössum og þrífa smá, pabbi að vinna í rafmagninu og klósettkassanum og Albert og Maggi að skrúfa saman og setja allt upp. Núna er sko stutt í fyrstu nóttina í íbúðinni.

Það sem þarf að gera áður en við flytjum inn er að velja mósaíkflísar, setja þær upp og fúa, kaupa litla innréttingu og koma henni fyrir ásamt því að hengja klósettið aftur upp. Done and done. Við vorum búin að velja (og kaupa!) mósaíkflísar (þær fara á kassann og á baðkarsröndina) en þær kostuðu 50 þúsund krónur, 20 þúsund fermeterinn. Þannig að ég var náðarsamlegast send aftur að velja aðrar flísar því það er hægt að fá fínustu flísar fyrir 7-8 þúsund á fermeterinn. Það verður verkefnið mitt í dag!

Dýrustu flísarnar eru efst til vinstri. Bjána flísar að vera svona dýrar! Hinar hafa allar verið úrskurðaðar vanhæfar greyin.

Thursday, October 11, 2012

Hádegishlé

Núna er heldur betur farið að sjá mun á baðherberginu! Síðustu flísarnar voru settar upp í gærkvöldi og ég og pabbi erum á leiðinni að fúa allavega 1 vegg núna :D Svo tókum við stóra ákvörðun í gær að vera ekkert að reyna að sérsmíða neitt heldur kaupa bara litla staka innréttingu sem passar á milli klósettkassa og þvottavélar og er nógu stutt til að kattasandurinn geti komist undir. Sem þýðir að þegar við erum búin að fúa (er það kannski fúga?) að þá getum við sett upp innréttingu sem við kaupum og voilá, baðherbergið tilbúið! Svo verður náttúrulega alltaf hægt að bæta við skápum og ljósum og speglum og alls konar, en það sem mestu máli skiptir er að fá vaskinn upp.

Ég er byrjuð í meðgöngusundi því grindin mín er í ruglinu. Smellur og hringlar í henni þegar ég labba! Skrýtið samt að hún er í miklu betra ásigkomulagi eftir að ég er búin að vera uppi í íbúð að dröslast, taka upp úr kössum eða e-ð, en eftir kannski 2 klst af setu í skrifborðsstól er eins og hún ætli í sundur. Núna er ég bara að vinna 5 tíma vaktir en men ó men hvað það getur verið sárt að standa upp úr stólnum þó ég reyni að gera það a.m.k. einu sinni á klst! Vinnan er samt ekki alveg eins skemmtileg finnst mér, auðvitað er leiðinlegt að vera alltaf illt og taka hænuskref ef ég þarf að fara e-ð og svona en það er ekki bara það... Yfirmaður minn var t.d. að biðja mig um að vinna frá 19-22 á morgun í staðinn fyrir 14-19 og mér finnst ég endalaust vera með samviskubit yfir að vera ekki að vinna fleiri tíma / lengri vaktir. Ég sagðist ætla að tala um það við ljósuna og láta hann svo vita (er satt að segja ekki að sjá það í hyllingum að vera að vinna til 22) en mér fannst hann ekki taka nógu vel í það, fór að segja að hann væri bara að reyna að redda kvöldunum sem væru þung út af miklu álagi og svona. Sem mér finnst að ég eigi ekki að fá samviskubit yfir, en hæææ ég heiti Ósk og líður illa yfir þessu öllu saman. Hlakka til að fá ráð hjá ljósunni um þetta allt á morgun.

Á morgun fer ég í bólusetningu í mæðró og ég er með fullt fullt af spurningum handa henni sem ég er samviskusamlega búin að skrifa í símann minn svo pregnancy brain geti ekki gleymt neinu.

Sprikli er enn alltaf all over en ég vona að hann fari að skorða sig aftur því hann er oft alveg klesstur undir rifbeinin mín og ég held að hann gæti verið að orsaka allt bakflæðið! Þá vil ég nú frekar fá hann niður í grindina aftur þó það geti alveg fylgt ágætir stingir í klofið :P

Hér eru myndir frá því ég var komin sléttar 36 vikur, fyrri er tekin um morguninn og seinni eftir langan dag þegar ég var nýkomin úr sundi. Ég er ekki frá því að bumban sé stærri um kvöldið, enda ég kannski meira letting it all out svona þreytt!


Tekin í hádeginu


Og um kvöldið, asnalega handastellingin er því að kjólinn minn pokast alltaf asnalega þarna fyrir ofan rassinn!

Í nótt var ég andvaka frá 5-8 en náði að dorma aðeins eftir það sem betur fer en það er alveg merkilegt hvað ég finn úthaldið verða minna og minna með hverjum deginum sem líður. Kannski ég ætti að minnast á það við ljósuna líka, en ég held samt að það sé alveg eðlilegt og kannski er ég að gera of miklar kröfur á úthaldið mitt þegar það er svona stutt í settan.

Ég var spurð 3x að því í gær hvað ég ætti langt eftir og í öll skiptin var fólkið steinhissa á svarinu. 26 dagar eftir í dag þeinkjúverímení! Sjitt sjitt sjitt... Albert var einmitt að setja mér verkefni að pakka saman nokkrum nauðsynjum fyrir spítalatöskuna, næbbum og sokkum og svona. Ómægúddness hvað það gerir þetta e-ð raunverulegt að ætla að pakka niður! En ég vil helst bíða aðeins með það þangað til við erum búin að þvo nokkrar babyflíkur, sem verður ekki fyrr en í næstu viku þegar þvottavélin verður kominn á sinn stað á baðherberginu. Fingers crossed að litli verði stilltur og prúður og haldi sig í bumbunni allavega fram að setum degi :D

Tuesday, October 9, 2012

36 vikur í dag

Og við eigum eftir að taka bumbumynd þannig að ég stel myndinni hennar Elvu sem hún tók af okkur Láru í gærkvöldi, en Lára er næstum nkl 2 mánuðum á eftir mér.


Hressandi tilbreyting að vera ekki í vinnugallanum á einni bumbumynd :) Hmm ég sé að ég á eftir að setja inn 35 vikna myndina, set hana inn þegar ég er búin að tæma myndavélina, svo þarf ég líka að setja inn myndir af allri málningarvinnunni!

En í dag fer ég ekkert í vinnugallann og ég fór heldur ekki í hann í gær. Ég finn mikinn mun á mér núna og frá því við fengum afhent fyrir rúmum 3 vikum síðan... Mér líður eins og ég sé löt, vill alltaf vera að taka pásur eða setjast niður eða fá mér að drekka, en betri vitundin segir að þessar síðustu 3 vikur á fullri keyrslu taki sinn toll og núna þegar það er minna en mánuður í settan dag er úthaldið skiljanlega á undanhaldi. Mér finnst virkilega erfitt að kúpla mig út úr framkvæmdunum í íbúðinni en maður verður að hlusta á kroppinn og það gengur ekki að vera alltaf á síðustu bensíndropunum. Albert og pabbi eru líka fullfærir um að vinna án mín þó þeir vilji nú af og til kalla á "verkfræðinginn" til að hafa stjórn á hlutunum og geta kennt um rangar ákvarðanir og svona :P

Nóttin í nótt var löng og hvíldarlítil hjá mér. Ég sat greinilega of mikið í gær, fyrst í vinnunni, svo á fæðingarundirbúningsnámskeiði og svo úti að borða með stelpunum og þetta orsakaði helaumar mjaðmir í nótt og böns af hörðum samdráttum. Það var nú ekki það versta við nóttina heldur blessaður nábíturinn! Ég veit ekki hversu oft ég vaknaði í nótt við að vera að æla upp í mig :S ÓGEÐslegt. Þannig að ég var mikið á vappinu, pissandi og poppandi Rennie og að reyna að koma mjöðmunum á mér betur fyrir. Kisurnar voru ekki að hjálpa heldur, fá oft athyglissýki á nóttunni þessa dagana því við erum svo lítið heima.

Undanfarið hafa samdrættirnir verið að styrkjast. Fjöldinn heldur sér sirkabát, en þeir eru alltaf að verða sárari og sárari, alveg þannig að ég þurfi að taka mér pásu í því sem ég er að gera og einbeita mér að því að láta hann líða hjá. Þannig samdrættir voru mjög vinsælir í nótt og í morgun, og oft bara nokkrar mínútur á milli. Þannig að ég er enn frekar lost með hvernig maður veit að maður sé að fara af stað, en mamma sagði að maður bara "finndi það" og ég er að treysta á það.

Ég ætlaði að fara upp í íbúð með pabba í dag og leggja nokkrar flísar en hann talaði mig ofan af því áðan, þannig að mitt djobb í dag er að hvílast eins og ég get, vinna í 5 tíma og kíkja svo í meðgöngusund í kvöld ef ég næ að skrá mig. Kannski líka prjóna smá. Arndísin mín á líka afmæli í dag svo ég verð allavega að heyra í henni og óska henni til hamingju með lífið og tilveruna :)

Tuesday, October 2, 2012

Svefn!

Ég svaf í nótt! Ómægúddness hvað það breytir deginum hjá manni að ná að sofa!

Í gær eftir vinnu var kaffiboð í tilefni afmælis pabba og eftir það fórum við á fæðingarundirbúningsnámskeið. Ég var í e-u hormónaflippi eða e-ð allt námskeiðið, var að kafna úr hita og gat engan veginn komið mér fyrir! Hjartslátturinn kominn á fullt og bjúguð og andstutt... Hehe algjört óléttumóment! En námskeiðið var annars ágætt, maður fékk það reyndar hressilega á tilfinninguna að leiðbeinandinn væri illa undirbúinn. Við erum búin að undirbúa okkur svo vel að við vorum ekki beint að læra neitt nýtt, en mér fannst samt ágætt að tala um þetta, gerði það svolítið raunverulegt hvað það er stutt í þetta. En leiðbeinandinn var voða jaaaá, neeee týpa, svona sem hummar frá sér spurningar, er ekki með skýran þráð í frásögninni og virkaði frekar óviss með þetta allt saman.

Við vorum að tala um samdrætti og hún var að segja að þegar samdrættirnir eru orðnir reglulegir, margir og kröftugir að þá væri maður að fara af stað.
Ég: "En konur sem eru búnar að vera með samdrætti frá því snemma á meðgöngunni og eru jafnvel vanar að fá 7-8 eða fleiri á klst, hvernig vita þær að þær eru að fara af stað? Eru það þá helst verkirnir sem þær eiga að horfa á?"
Hún: "Jaaaá sko það eru sumar konur sem eru einmitt með mikla samdrætti síðustu vikurnar og það getur verið svolítið hvimleitt..."
Ég: ?

Albert þurfti svo að fara í skólann og ég ákvað að taka kvöldið í slökun, bloggaði og hafði það gott. Þegar hann kom heim áttum við rosa kósý stund þar sem Albert spilaði á gítarinn og söng fyrir sprikla á meðan ég prjónaði fyrir hann, fyrstu flíkina fyrir utan þennan eina sokk sem ég gerði í sumar. Þetta var æðislegt og mér varð hugsað til annarra óléttra para sem eru ekki að gera upp íbúð, ætli þau séu ekki að gera e-ð svona kósý undirbúningsdót all the time?

Stroff á skálm!

Síðustu nætur er ég vön að vakna skrilljón sinnum á nóttunni út af pissuferðum, nábít eða verkjum í grindinni og á alltaf erfitt með að sofna aftur og er yfirleitt andvaka í allavega 2 klst, en nóttin í nótt var einhvern veginn öðruvísi! Í hvert sinn sem ég vaknaði til að pissa eða bylta mér eða e-ð náði ég að sofna nánast strax aftur! Meira að segja í eitt skiptið þegar ég var með trylltan brjóstsviða, búin að taka Rennie og var með sódabragð í munninum og ofan í maga, fór ég framúr, borðaði smá tannkrem (fann ekkert tyggjó) og fór aftur uppí og búmm! Sofnaði! Tannkremið bjargaði nóttunni :D

Í morgun var svo planið að fara með pabba snemma upp í íbúð en ég bara dormaði og var í rúminu til hálf 12! Þá þurfti ég að rífa mig framúr! Maaan hvað þetta var gott!

Svo er dagurinn í dag búinn að vera extra productive, Stína kom og hélt áfram að lakka eldhúsinnréttinguna, við pabbi kláruðum að flísaleggja baðherbergisgólfið, Albert setti upp hillur í geymslunni og kallarnir hentu upp öllum ofnunum. Á morgun klárum við vonandi að mála ofnana og eldhúsinnréttinguna, fúa gólfið, festa upp klósettið og undirbúa fyrir flísar á veggina á baðinu.

Í kvöld aftur á móti ætla ég að prjóna og njóta þess að vera ólétt með tærnar upp í loft og vonandi sofa aftur í nótt ;)

Monday, October 1, 2012

Baðherbergismyndapóstur

Sama dag og við fengum afhent fórum við í að rífa dúkinn af veggjunum

Undir dúknum var þykkt lag af lími sem þurfti að skafa burtu (hér er Dabbi að spreyta sig með mér)

Það var svo annar dúkur á gólfinu, hér eru Albert og Eva á fullu að ná honum af. Undir þessum dúk var svo annar dúkur (ljósgrár) sem pabbi tók sig til og skóf í burtu

Hér er búið að skafa nokkurn veginn allt, nema baðherbergisbrúnina og undir vaskinum

Albert með höggvélina að berja upp úr skurðinum fyrir hitalagnirnar

Sáttir í rykinu

Svo þurfti að leggja lögnina án þess að leyfa henni að beyglast

Lalli kom og tengdi allt saman fyrir okkur, hér er hann að tengja í fína handklæðaofninn okkar

Það þurfti að steypa lagnirnar niður og fékk ég þann heiður

Hér er steypan blaut

Og þornuð

Hér er ég aðeins að fá að "laga" eftir að pabbi flotaði gólfið

Gólfið flotað og þurrt og tilbúið í flísalögn

Pabbi leggur, ég laga

Ein flísin var gölluð, brotið upp úr henni og hún var akkúrat á stað sem væri alltaf mjög áberandi þannig að pabbi braut hana upp og þurfum við að leggja hana aftur.

Svona er staðan á baðinu í dag, á morgun er planið að festa niður klósettið, skera restina af flísum og leggja þær, undirbúa veggina fyrir flísalögn og líka málun efst, þannig að það þarf að spatla þar og jafnvel nota "sellúlósa" eða hvað það heitir til að ná líminu alveg af. 

Þetta er bara planið fyrir baðið á morgun, síðan ætlum við að fá Stínu í heimsókn til að klára að lakka eldhúsinnréttinguna, við ætlum að pússa 2 ofna og grunna þá og mála hina. Svo væri voða gott að geta sett upp hillur í geymslunni. Já gott fólk, brjálað að gera og tíminn flýgur áfram!