Ég er ekki að fíla hormónasveiflurnar sem eru svona á lokasprettinum. Búin að vera einstaklega slæm í dag, ætli það sé ekki því ég er mjög lítið sofin. Það er ótrúlega skrýtið að finna hvernig skapið ætlar að breytast 180° án þess að maður geti neitt spornað við því. Eina mínútuna er ég hress, þá næstu gjörsamlega ómöguleg og pirruð svo hlæ ég bara. Svo fer ég að gráta. Obboslega gaman. Albert á hrós skilið að vera svona góður við mig á meðan ég stekk öfganna á milli.
Við kláruðum að þvo síðustu babyfötin í dag og erum komin með ágætis skipulag á skúffurnar hans held ég. Síðan straujaði ég helminginn af taubleiunum meðan Albert kenndi nemanda sínum, hinn helminginn ætlum við að lita bláan og verða þær fyrir munninn og hvítu fyrir bossann. Straujaði líka lökin fyrir vögguna og núna þurfum við bara að þvo sængina og setja utan um hana og þá er vaggan ready steady.
Albert þvoði snuddurnar áðan og skiptitaskan er pökkuð þannig að þetta er heldur betur allt að smella. Spítalataskan er líka pökkuð en ofan á henni er nokkuð langur listi yfir hluti sem Albert þarf að henda ofan í ef allt fer af stað. Eina stóra sem er eftir núna er að smíða bakka ofan á kommóðuna hans svo við getum notað hana sem skiptiborð. Tölum um það við pabba á morgun en hann var mjög líklega með plötu sem við getum notað.
Stína og co (systir mömmu Alberts) kíktu í heimsókn áðan með gommuna af prjónuðum fötum fyrir sprikla svo við getum alveg bókað að honum ætti ekki að verða kalt næstu mánuðina! Ég kláraði húfuna fyrir hann í gærkvöldi, á reyndar eftir að skola úr henni, en ég finn enga uppskrift að lúffum svo ég hugsa að ég geri þær bara eftir auga.
Við settum álpappír í vögguna því hljóðið í honum á að vera óþægilegt fyrir kisur og hann svínvirkar á Lúsí, hún er skíthrædd við hann og vill ekkert koma nálægt vöggunni. Setti framloppurnar á hana áðan og varð skíthrædd við brakið í henni og vill ekkert með hana hafa, álpappírinn er hræðilegur. Krummi aftur á móti er ekki svona auðveldur. Hann er ekki mjög auðhræddur og finnst álpappírinn bara kósý. Á meðan ég var að strauja úr vöggunni í dag lagði ég pappírinn á rúmið og hann fór bara að leika sér að honum, naga hann og svona, láta braka almennilega í honum. Og Albert er búinn að sprauta á hann tvisvar með vatnsbyssunni því álpappírinn er svo spennandi að hann stelst í vögguna. DEMIT! Sem betur fer er Krummi ALLS ekki kjöltukisi og vill aldrei vera ofan á neinum, í mesta lagi við hliðina á manni, en samt mjög sjaldan. Vonandi mun hann ekki sækjast í vögguna þegar sprikli er kominn í hana, en við þurfum bara að fylgjast vel með þessu. Lúsí væri reyndar mun líklegri til þess því hún elskar að kúra ofan á manni og sækist í hlýjuna.
Jæjaaa komin poppskál fyrir framan mig, what to expect when expecting tilbúin í spilun og Albert bíður. Hormóns over and out!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment