Fæ alltaf af og til sára stingi í brjóstin, veit ekki af hverju það er en ég held það gæti verið ef mjólkin er að streyma inn.
Sætasta puttanum tekst alltaf að troða sér úr náttserknum.
Við hringdum í hjúkrunarfræðinginn í morgun út af litla og magapílunum hans. Hún sagði að hann væri mögulega að fá of mikið og að ég ætti að treina bilið milli gjafa í allavega 2-3 klst en eins og er þá eyðir hann megninu af vökutímanum í að drekka. Framleiðslan hjá mér er alveg á fullu og litla greyið gubbar svo bara þegar hann er búinn að drekka, greinilega stútfullur af mjólk. Albert vigtaði hann áðan og hann er búinn að þyngjast um hálft kíló frá því í 5 daga skoðuninni! Hann fær greinilega gott að borða :)
Litli bollu-bóli með aðra brúnina upp
Albert keypti dropa fyrir hann í jurtaapóteki, þeir heita Skírnir og við eigum að gefa honum þá fyrir gjafir og þeir eiga að róa magann. En hann er líka að hósta og með slatta af slími ofan í sér og vildi hjúkrunarfræðingurinn að við kæmum með hann í skoðun ef hann verður ekki skárri á morgun. Fingers crossed.
Augað hans er ekkert að skána, í fyrramálið ætla ég að prófa að setja brjóstamjólk í það því það virkaði hjá Kristjáni hennar Arndísar.
Lúsí er rosalega hrifin af augnmeðalinu!
Það er erfitt að treina bilið á milli gjafa því hann er svo vanur að drekka stöðugt en Albert gengur um gólf með hann á öxlinni og heijjar og hóar þar til hann róast. Núna vonum við bara það besta með gjafirnar og dropana og að þessi magakveisa mín láti sig hverfa á núll-einni!
No comments:
Post a Comment