Monday, October 1, 2012

Baðherbergismyndapóstur

Sama dag og við fengum afhent fórum við í að rífa dúkinn af veggjunum

Undir dúknum var þykkt lag af lími sem þurfti að skafa burtu (hér er Dabbi að spreyta sig með mér)

Það var svo annar dúkur á gólfinu, hér eru Albert og Eva á fullu að ná honum af. Undir þessum dúk var svo annar dúkur (ljósgrár) sem pabbi tók sig til og skóf í burtu

Hér er búið að skafa nokkurn veginn allt, nema baðherbergisbrúnina og undir vaskinum

Albert með höggvélina að berja upp úr skurðinum fyrir hitalagnirnar

Sáttir í rykinu

Svo þurfti að leggja lögnina án þess að leyfa henni að beyglast

Lalli kom og tengdi allt saman fyrir okkur, hér er hann að tengja í fína handklæðaofninn okkar

Það þurfti að steypa lagnirnar niður og fékk ég þann heiður

Hér er steypan blaut

Og þornuð

Hér er ég aðeins að fá að "laga" eftir að pabbi flotaði gólfið

Gólfið flotað og þurrt og tilbúið í flísalögn

Pabbi leggur, ég laga

Ein flísin var gölluð, brotið upp úr henni og hún var akkúrat á stað sem væri alltaf mjög áberandi þannig að pabbi braut hana upp og þurfum við að leggja hana aftur.

Svona er staðan á baðinu í dag, á morgun er planið að festa niður klósettið, skera restina af flísum og leggja þær, undirbúa veggina fyrir flísalögn og líka málun efst, þannig að það þarf að spatla þar og jafnvel nota "sellúlósa" eða hvað það heitir til að ná líminu alveg af. 

Þetta er bara planið fyrir baðið á morgun, síðan ætlum við að fá Stínu í heimsókn til að klára að lakka eldhúsinnréttinguna, við ætlum að pússa 2 ofna og grunna þá og mála hina. Svo væri voða gott að geta sett upp hillur í geymslunni. Já gott fólk, brjálað að gera og tíminn flýgur áfram!

4 comments:

Hrafnhildur said...

pjatt er þetta, þið hefðuð nú bara átt að hafa áfram þetta fallega veggfóður og gólfdúk :P haha
Nei bara djók, þetta lookar vel, hlakka til að sjá hvernig þetta kemur út þegar það verður allt reddí :)

Birna Rún said...

Öss hvað þetta gegnur vel, er rosa spennt að sjá útkomuna. Daglegt updeit takketítakk ;)

Ósk said...

Hehe já ég hefði kannski átt að geyma dúkinn Hrafnhildur, þú hefðir auðvitað getað fengið hann fyrir baðherbergið þitt! :P

Já ég verð dugleg að öpdeita núna :D

Ósk said...

Hehe já ég hefði kannski átt að geyma dúkinn Hrafnhildur, þú hefðir auðvitað getað fengið hann fyrir baðherbergið þitt! :P

Já ég verð dugleg að öpdeita núna :D