Tuesday, October 2, 2012

Svefn!

Ég svaf í nótt! Ómægúddness hvað það breytir deginum hjá manni að ná að sofa!

Í gær eftir vinnu var kaffiboð í tilefni afmælis pabba og eftir það fórum við á fæðingarundirbúningsnámskeið. Ég var í e-u hormónaflippi eða e-ð allt námskeiðið, var að kafna úr hita og gat engan veginn komið mér fyrir! Hjartslátturinn kominn á fullt og bjúguð og andstutt... Hehe algjört óléttumóment! En námskeiðið var annars ágætt, maður fékk það reyndar hressilega á tilfinninguna að leiðbeinandinn væri illa undirbúinn. Við erum búin að undirbúa okkur svo vel að við vorum ekki beint að læra neitt nýtt, en mér fannst samt ágætt að tala um þetta, gerði það svolítið raunverulegt hvað það er stutt í þetta. En leiðbeinandinn var voða jaaaá, neeee týpa, svona sem hummar frá sér spurningar, er ekki með skýran þráð í frásögninni og virkaði frekar óviss með þetta allt saman.

Við vorum að tala um samdrætti og hún var að segja að þegar samdrættirnir eru orðnir reglulegir, margir og kröftugir að þá væri maður að fara af stað.
Ég: "En konur sem eru búnar að vera með samdrætti frá því snemma á meðgöngunni og eru jafnvel vanar að fá 7-8 eða fleiri á klst, hvernig vita þær að þær eru að fara af stað? Eru það þá helst verkirnir sem þær eiga að horfa á?"
Hún: "Jaaaá sko það eru sumar konur sem eru einmitt með mikla samdrætti síðustu vikurnar og það getur verið svolítið hvimleitt..."
Ég: ?

Albert þurfti svo að fara í skólann og ég ákvað að taka kvöldið í slökun, bloggaði og hafði það gott. Þegar hann kom heim áttum við rosa kósý stund þar sem Albert spilaði á gítarinn og söng fyrir sprikla á meðan ég prjónaði fyrir hann, fyrstu flíkina fyrir utan þennan eina sokk sem ég gerði í sumar. Þetta var æðislegt og mér varð hugsað til annarra óléttra para sem eru ekki að gera upp íbúð, ætli þau séu ekki að gera e-ð svona kósý undirbúningsdót all the time?

Stroff á skálm!

Síðustu nætur er ég vön að vakna skrilljón sinnum á nóttunni út af pissuferðum, nábít eða verkjum í grindinni og á alltaf erfitt með að sofna aftur og er yfirleitt andvaka í allavega 2 klst, en nóttin í nótt var einhvern veginn öðruvísi! Í hvert sinn sem ég vaknaði til að pissa eða bylta mér eða e-ð náði ég að sofna nánast strax aftur! Meira að segja í eitt skiptið þegar ég var með trylltan brjóstsviða, búin að taka Rennie og var með sódabragð í munninum og ofan í maga, fór ég framúr, borðaði smá tannkrem (fann ekkert tyggjó) og fór aftur uppí og búmm! Sofnaði! Tannkremið bjargaði nóttunni :D

Í morgun var svo planið að fara með pabba snemma upp í íbúð en ég bara dormaði og var í rúminu til hálf 12! Þá þurfti ég að rífa mig framúr! Maaan hvað þetta var gott!

Svo er dagurinn í dag búinn að vera extra productive, Stína kom og hélt áfram að lakka eldhúsinnréttinguna, við pabbi kláruðum að flísaleggja baðherbergisgólfið, Albert setti upp hillur í geymslunni og kallarnir hentu upp öllum ofnunum. Á morgun klárum við vonandi að mála ofnana og eldhúsinnréttinguna, fúa gólfið, festa upp klósettið og undirbúa fyrir flísar á veggina á baðinu.

Í kvöld aftur á móti ætla ég að prjóna og njóta þess að vera ólétt með tærnar upp í loft og vonandi sofa aftur í nótt ;)

No comments: