Ég fór til doksa í gær út af grindinni minni, hún sagðist varla þurfa að skoða mig en þurfti samt að gera það for the record og niðurstaðan var hringlandi grindagliðnun og ekki meiri vinna fyrir mig þessa meðgönguna takk fyrir góðan daginn bless. Þannig að ég fór út með sjúkradagpeningavottorð, beiðni í sjúkraþjálfun og vottorð fyrir vinnuveitanda.
Bossinn tók þessu betur en mig hefði nokkurn tíma grunað, knúsaði mig 3x sinnum og bauð mér að hætta deginum fyrr. Ég s.s. ætlaði að hafa síðasta daginn í dag, en hann sagðist vera búinn að vera með samviskubit að horfa á mig í vinnunni, augljóslega kvalin, og hvort ég vildi ekki bara hætta samdægurs! Uuuu júúújú, auðvitað vildi ég það og sleppa við 5 klst af sársauka! Þannig að það var ákveðið með klst fyrirvara að þetta væri síðasti dagurinn minn! Á þeim klukkutíma lenti ég í hálftíma símtali við konu með 100 ára tölvu með íslensku stýrikerfi sem hún kunni ekkert á og wifi vandamál, reyndi að ganga frá borðinu mínu, setja auto-reply á póstinn minn og kveðja samstarfsfélagana. Skrifaði svo undir samning varðandi fjarveruna mína og kvaddi bossinn sem lét mjög falleg orð falla: "Mig langar bara að þú vitir að þú ert frábær starfsmaður og veistu, mér finnst þú bara alveg æðisleg!". Ekki leiðinleg kveðja það!
Þetta var allt gert á hálfgerðum hlaupum því við Albert vorum orðin of sein upp á fasteignasölu, en við fengum afsalið í hendurnar í gær! Woohoo! Þeim tókst reyndar að rukka okkur SURPRISE 80 þúsund krónum meira en þau voru búin að tala um, en sem betur fer erum við búin að vera dugleg að safna svo það tókst ekki að hagga gleðinni okkar.
Í gær var sumsé góóóður dagur og fögnuðum við honum með því að Albert eldaði steikur handa okkur þrímenningunum. Svo eyddi ég kvöldinu í að prjóna á sprikla með ekkert sigg (allavega miklu minna!) á puttunum og hjálpa Alberti með ritgerð sem hann þarf að skila í dag. Ég þarf liggur við að sitja á puttunum mínum því það er svo freistandi að skrifa hana bara fyrir hann og ég hef tímann en ekki hann! En auðvitað geri ég það ekki :)
Klukkan er hálf 11 og ég er búin að vera vakandi frá 6. Mig langaði svooo mikið að fara framúr þegar ég vaknaði! Mig langaði að fara í sturtu, kíkja aðeins meira á ritgerðina hjá Alberti, blogga smá, þrífa baðherbergið og ganga frá þvotti. Aðeins of hyper í huganum. En ég ákvað að bíða allavega þangað til kallarnir væru farnir á fætur og enn og aftur var ég dauðsfegin að vera með æfóninn minn.
En að íbúðinni!
Moving day var á sunnudaginn og gekk rosa rosa vel þökk sé æðislegum vinum Alberts og auðvitað pabba og Alberti sjálfum. Á meðan þeir hömuðust við að bera og ferja tók Lára mig á Hótel Sögu þar sem við tróðum óléttu magana okkar fulla af alllls konar gúmmulaði og sko MIKIÐ af því. Jeremías minn, ég held að kransæðarnar mínar séu enn að jafna sig eftir beikonfjallið!
Ég fór svo með veitingar fyrir sveitta og þreytta burðarmenn upp í Teigó þar sem mamma joinaði okkur og vorum við að dúllast fram undir kvöld að ditta að íbúðinni. Við mamma að taka upp úr kössum og þrífa smá, pabbi að vinna í rafmagninu og klósettkassanum og Albert og Maggi að skrúfa saman og setja allt upp. Núna er sko stutt í fyrstu nóttina í íbúðinni.
Það sem þarf að gera áður en við flytjum inn er að velja mósaíkflísar, setja þær upp og fúa, kaupa litla innréttingu og koma henni fyrir ásamt því að hengja klósettið aftur upp. Done and done. Við vorum búin að velja (og kaupa!) mósaíkflísar (þær fara á kassann og á baðkarsröndina) en þær kostuðu 50 þúsund krónur, 20 þúsund fermeterinn. Þannig að ég var náðarsamlegast send aftur að velja aðrar flísar því það er hægt að fá fínustu flísar fyrir 7-8 þúsund á fermeterinn. Það verður verkefnið mitt í dag!
Dýrustu flísarnar eru efst til vinstri. Bjána flísar að vera svona dýrar! Hinar hafa allar verið úrskurðaðar vanhæfar greyin.

5 comments:
Hvurslags rugl verd er á thessum flísum!!
En til hamingju med fullar 37 vikur. Thad er eins gott ad litli herramadurinn chilli adeins inni medan thú pakkar almennilega upp og kemur øllu í stand.
Og ljós punktur med ad thú sért hætt ad vinna er ad nú geturu bloggad hægri vinstri og labbad um allt Teigasel 15(eda er ég ad segja random númer) og tekid myndir af øllu og póstad 18 bloggum á dag um allt og ekkert! Jayyyy Hlakka til ad lesa ;)
Til hamingju með 37 vikurnar og fluttninginn :) ooohh hlakkar svo til að sjá :) og ég er sammála birnu ...hlakka til að lesa öll bloggin :) híhíhí
Þeinkjú darlíngs :)
Haha já nú verð ég að vera dugleg að skrifa, það er svo gaman að eiga þetta seinna meir!
En Börní það er númer 9, mikið svakalega verður nú gaman að geta boðið ykkur í heimsókn! :D
Já og svakalega verdur gaman ad geta labbad bara yfir til ykkar :)
Milla var einmitt ad skoda bloggid sitt til ad reyna muna hvernig henni leid thegar hún var komin 6 mán. hún segir ad thad sé eins og madur gleymi eitthvernveginn hvernig medgangan var ádur en madur er gjørsamlega ad springa úr óléttu.. Gaman ad eiga thetta einmitt svona eftirá.
Já ég held það sé fljótt að fenna í sporin! Ég er einmitt ekki farin að upplifa mig sem kasólétta ennþá, ætli það sé ekki af því að kúlan er ekki mjög stór eða þá að ég hreinlega hef ekki haft tíma í það :P
Post a Comment