Wednesday, September 19, 2012

Bumbumyndir!

Albert sótti mig eftir vinnu í gær og as per usual settumst við niður með pabba og plönuðum og ákváðum og mátum og hugleiddum endalaust af hlutum í sambandi við íbúðina. Næstu pælingar eru hvernig við viljum hafa lýsinguna á baðinu, en það er e-ð sem ég hef aldrei myndað mér skoðun á áður en þyrfti að vera búin að ákveða fyrir helgi :D

Eftir spjallið tókum við nokkrar bumbumyndir því ég var komin 33 vikur,  ég slepp ekki þó ég sé vel hálsbólguð og örþreytt! Ohh af hverju geta mínar vikur ekki verið sléttar um helgar svo ég geti alltaf verið fresh og sæt á þeim?? :P

Búúmmmba!

Hér sést vel hvað hún er stór finnst mér!

Og hér er ég að sýna æðarnar sem koma alltaf á síðurnar mínar á kvöldin, skærbláar og fínar.

Albert er í skólanum, við pabbi erum á leiðinni að leigja vél til að skera í gólfið fyrir hitalagnirnar. Svo förum við upp í íbúð og þar mun ég geta dúllast við að spastla smá meira og rífa niður e-ð af dúknum í eldhúsinu. Á morgun set ég inn myndir af íbúðinni!

5 comments:

Birna Rún said...

vó hólí camólí bumban er orðin að BUMBU!! 33 vikur! Hann er ekkert lengi að líða, tíminn.

Lára Ósk said...

Tíminn er alltof flottur að líða!! er að lova það hvað þú ert dugleg að setja inn myndir, ætti að taka þig til fyrirmyndar hehe.

Ósk said...

Nei ji tíminn flýgur ofur hratt! Soldið scary tilhugsun að ef ég fer af stað eftir 2 vikur (ef samdrættirnir hætta að hóta bara og fara að actually framkvæma) þá verður ekki einu sinni REYNT að stoppa mig, sprikli verður bara boðinn velkominn í heiminn! 2 vikur! Sjittmægad!

Lára þú manst heimavinnuna ;)

Birna Run said...

Lára ég kann ekkert ad commenta á síduna thína, en vildi bara segja ad thig gætud bara hlustad á hvorrar annarrar hjartslátt gegn um kúlurnar :D

Lára Ósk said...

haha já við gætum kannski gert það! En ég held ég sé búin að laga commenta ruglið hjá mér núna..