Sunday, September 30, 2012

Sunnudagshvíld

Albert er uppi í íbúð og ég skammast mín fyrir það en ég er með smá samviskubit yfir að vera ekki þar líka að hjálpa til. :$

Ég er farin að sofa svo illa og ligg stundum andvaka í 2 klst áður en ég næ að sofna aftur og það tekur svo mikið af orkunni manns fyrir daginn! Í morgun vaknaði ég klukkan 6 og þegar klukkan var 8 gafst ég upp á þessu og fór framúr, og við vorum komin upp í íbúð rúmlega 9. Fórum svo í sund og maaan alive hvað það var þægilegt að nánast sofna í andapollinum í Breiðholtslauginni! Fengum okkur svo aspasstykki, kíktum á bókasafnið og fórum svo heim þar sem ég gat sofnað smá.

Á bókasafninu náði ég í nokkur prjónablöð en á allri meðgöngunni er ég bara búin að prjóna 1 stakan sokk á sprikla. Það var alltaf draumurinn að vera búin að prjóna heimferðarsett og teppi og alls konar húfur og vettlinga, en ég er ekki að fara að hafa tímann í það fyrir fæðingu. En mig langar samt að prjóna e-ð sætt og hlýtt á hann, helst sem hann getur verið í þegar við förum heim af fæðingadeildinni.

Það gengur ljómandi vel í íbúðinni, en líka frekar hægt. Veit ekki hvenær við getum flutt inn, vonandi næstu helgi en þá er einmitt sléttur mánuður í settan dag. Pabbi skar gólfflísar í gær og núna er megnið af baðherbergisgólfinu orðið flísalagt. Hann segist ekki vilja leggja fleiri flísar nema ég sé á staðnum svo ætli það verði nokkuð fyrr en á þriðjudaginn sem fleiri bætast við því á morgun á hann afmæli og eftir smá kökukaffi förum við Albert á fæðingarundirbúningsnámskeið.

Albert var að senda mér sms "Babyroom tilbúið! :D" Jeij! Hlakka til að sjá hvernig brúni liturinn kemur út!

Hér er mynd af Lúsí! Ég þarf svo að tæma myndavélina til að setja inn fleiri af íbúðinni.
Sætasta Lúsíin mín forvitin um hvað Krummi var að gera á svölunum.

Ég er ekki frá því að brjóstsviðinn og bakflæðið sé verra ef ég er illa sofin, veit ekki hversu margar Rennie ég er búin að taka í dag en samt er ég alltaf ælandi upp í mig! Jömmjömm...

Jæja ég ætla að fara að pakka inn gjöfunum til pabba fyrir morgundaginn og svo ætla ég að velja mér einhverja girnilega uppskrift til að prjóna og fara svo að sofa og vonandi SOFA þangað til ég þarf að vakna til vinnu :P

2 comments:

Lára Ósk said...

ertu silly að vera með samviskubit! Átt að eiga eftir mánuð! crazy woman!...En hérna ertu búin að prófa losec gegn bakflæðinu? Það er víst eitthvað awesome og er miklu betra en Rennie!

Ósk said...

Já enda skammaðist ég mín fyrir að viðurkenna það :$

En nei ég hef ekki prófað það, ég er bara hætt að treysta ljósunni minni með hvað ég á að taka þannig að ég hélt mig bara við Rennie :S