- Fór í mæðró í dag, komin 34v2d og sprikli er búinn að skorða sig, væntanlega fyrir þónokkru síðan því ég finn hikstann hans alltaf á sama stað. Hausinn á honum er svo langt ofan í grindinni að ljósan gat ekkert hreyft við honum, enda finn ég oft mikinn þrýsting niður í klof þegar ég er að labba!
- Hún minnkaði við mig vinnuna niður í 50% því ég er komin með svo mikið grindarlos að ég get illa unnið 8 tíma vaktir og sef illa á nóttunni út af því.
- Á daginn er lífbeinið verst og "harðsperrurnar" efst á lærunum, en á nóttunni finn ég svaka þreytuverk í mjöðmunum sem leiðir alveg niður í hæla.
- Yfirmaðurinn fékk sjokk þegar ég sagði honum að ég þyrfti að minnka við mig og sagði mér fyrst að ég yrði allavega að harka það af mér til að byrja með, fyrirvarinn væri of lítill (vottorðið gildir frá og með á morgun). Eftir smá samræður áttaði hann sig á hvað það er stutt eftir og samþykkti vinnuskerðinguna.
- Á meðan ég er búin að vera í tölvunni er bumban á FULLU og ég held að það gæti jafnvel verið að hann hafi snúið sér aftur því hann fékk hiksta sem færðist og er núna nálægt naflanum á mér! Kjánastrákur, brjálað að gera!
- Brjóstsviðinn og nábíturinn er ennþá á fullu en ég vil ekki taka lyfin sem eru gefin við þessu því það stendur víst á þeim að þau séu ekki ætluð óléttubínum. Þannig að ég haga matarræðinu bara í kringum þetta og er alltaf með Rennie á mér.
- Ég er ofsalega fegin hvað ég er með litla og "handhæga" bumbu því annars gæti ég ekki verið eins dugleg í íbúðinni!
- Bumban mældist ekki nema 32cm (legbotninn) í dag, en ljósan sagði að það væri alveg eðlilegt því hann er svo djúpt ofan í grindinni.
- Ég get ráðið því hvort naflinn á mér sé "innie" eða "outie", ef ég er slök er hann outie en ef ég spenni magavöðvana fer hann inn! Mjög fönkí að sjá naflann sinn kíkja svona út :S
Hér eru svo þreyttar 34v bumbumyndir, þarna var ég búin að vinna morgunvakt 8 tíma og fara svo upp í íbúð að vinna og klukkan var orðin ellefu um kvöldið :P
34 v bumba
Og þá að íbúðinni!
- Pabbi flotaði gólfið inni á baði í dag, sem þýðir að við getum keypt gólfflísar á morgun og vonandi lagt nokkrar niður annað kvöld.
- Hitalögnin gekk vonum framar á baðinu. Það var hellings ryk þegar kallarnir voru að höggva upp úr gólfinu, en lögnin sjálf held ég að hafi heppnast mjög vel þó við Albert höfum eytt heilu kvöldi skríðandi á gólfinu að reyna að þrýsta þessu almennilega niður.
- Ég fékk sjálf að steypa lagnirnar niður og var frekar montin af mér hvað það gekk vel og mjög þakklát fyrir að vera liðug og með litla bumbu, þetta var örugglega skrautleg sjón og synd að ekki sé til mynd af því!
- Eftir miklar pælingar enduðum við á að mála íbúðina í lit sem heitir silki-grátt, en á ensku heitir hann beige wool eða e-ð, en við allavega erum mjög ánægð með hann!
- Inni hjá okkur verðum við svo með 1 veggfóðraðan vegg, aðalveggurinn í stofunni verður grár og 1 veggur í barnaherberginu verður brúnn.
- Við erum búin að fá hellings hjálp frá Pálma og Magga vinum Alberts og Arndís er búin að vera dugleg að mæta og taka í pensilinn.
- Pabbi er vinnumaskína, í dag festi hann niður klósettið eftir mjög miklar pælingar um hæðina á því og fjarlægð frá vegg.
Vonandi verð ég duglegri að koma með update jafnóðum, það er miklu skemmtilegra en svona risablogg! En hér eru myndir frá því við fengum íbúðina afhenta eins og ég lofaði í síðustu færslu.
Fallegi skápurinn í fallega litaða hjónaherberginu
Hinum megin í hjónaherberginu, merkilega gott útsýni m.v. jarðhæð!
Við skulum bara orða það þannig að það var ekki erfið ákvörðun að taka baðherbergið í gegn!
Bjútífúl! Þvottavélin kemur svo þarna hjá ofninum
Eldhúsinnréttingin hægra megin
Og vinstra megin - núna þurfum við bara að safna fyrir uppþvottavél
Bleikt babyroom
Hinum megin frá í babyroom, efst á myndinni er dularfulla líkkistan sem enginn kann skil á
Græna tofan séð inn í eldhús
Stofan og GARÐURINN OKKAR! Á bakvið garðinn er svo róló
Svona vorum við glöð þegar við fengum afhent!
Jæja þá ætla ég að fá mér popp og ískalda kók og fara svo að sofa í hausinn á mér! Ég er nokkuð viss um að sprikli sé búinn að snúa sér, maginn á mér gengur í bylgjum og er harðastur efst. Kjána kjánastrákur! :)


1 comment:
Víí hlakka til að sjá AFTER myndirnar :) og reyndar líka in action á íbúðinni myndir hehe
Post a Comment