Ákvað að tékka á vinnupóstinum mínum til öryggis, því hann getur safnast svo svakalega upp um helgar. Leiðinlegt að segja frá því en á meðan ég ligg uppi í rúmi með tölvuna í kjöltunni í ofur kósýheitum þá fóru samdrættirnir aftur af stað við að skoða póstinn. :/ Ég verð bara að rise above it og láta álagið í vinnunni ekki ná svona til mín. Ég á jú bara eftir að vinna þarna í 5 vikur fram að orlofi ef ég fæ vikufríið í byrjun okt sem ég bað um!
Við Albert erum yfir okkur hamingjusöm með íbúðina en ég ætla að segja betur frá henni seinna. Ætla að setja nokkrar myndir inn núna frá því við fórum norður síðustu helgi í afmæli til Hrafns Sölva.
Voðalega gott að láta sig malla í pottinum í sveitinni
Barbapabba afmæliskakan - sjúlega flott og bragðgóð líka!
Þessi ormur fékk sér bita af eplinu
Myndarlegir feðgar
Nokkrir pakkar - Albert teiknaði kortið frá okkur til Hrafns Sölva
Þessi var í afmælisstuði
Ég fékk að lesa fyrir afmælisbarnið sem líkaði það alveg ágætlega
Stoltir foreldrar og ánægður eins árs Hrafn. Ég reyndi nokkuð oft en náði ekki mynd af þeim öllum að horfa í myndavélina!
Jæja best að koma sér af stað, Albert fer að koma úr skólanum með smá gotterí fyrir okkur í hádeginu. Svo fer ég í vinnuna klukkan tvö til tíu í kvöld og ég vona bara að samdrættirnir haldi sig á mottunni. Það versta við kvöldvaktirnar er að manni finnst stundum lítið verða úr deginum ef maður á að hvíla sig og slaka fyrir vinnu, því maður fer auðvitað beint í þann pakkann eftir vinnu líka. En þessi morgunn er búinn að vera æði svo ég kvarta ekki :)

No comments:
Post a Comment