Í dag átti ég að fara í 31. viku mæðraskoðun en ljósan var veik svo tímanum var frestað um viku. Ég var ferlega svekkt því ég er búin að safna nokkrum spurningum fyrir hana sem ég er æst að fá svör við.
Fyrst og fremst hefði ég viljað fá ráð / lyf við brjóstsviðanum eða nábítnum sem er búinn að fara stigvaxandi síðustu vikurnar og er orðinn ó.þol.andi núna. Ég bryð Rennie eins og nammi en samt er hann aaaalltaf til staðar. T.d. á morgnana, þá er ég reyndar yfirleitt laus við hann þangað til ég fæ mér morgunmat, sem er kannski jógúrt með kornflexi. Svo næstu klukkutímana eftir mat, sit ég í vinnunni og geri ekkert annað en að æla matnum aftur upp í mig. JÖMM! Rennie slær á, en sagan byrjar aftur næst þegar ég set e-ð í munninn, sama hvort það sé máltíð, ávöxtur eða vatnssopi. Ugh hvað það getur pirrað mig.
Æhh á meðan ég er að pikka er litli sprikli kominn með hiksta - þriðja hikstann í dag! Greinilegt að hann er duglegur að æfa sig að anda :D Finn smá til með honum að vera alltaf með svona mikinn hiksta því mér sjálfri finnst það svo pirrandi þegar það kemur fyrir mig, en það er ekkert smá krúttlegt að fylgjast með bumbunni á meðan hikstinn varir.
Ég fékk lánað bakbelti frá pabba áðan því í dag er fyrsti dagurinn sem ég er illa sofin út af verkjum í mjaðmagrindinni. Snúningslakið frá Söru hjálpar heling, en ég hlakka óneitanlega til að hætta að sofa á svefnsófanum hjá pabba og komast á gormað undirlag þegar við flytjum!
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla að fara og leggja lokahönd á peysuna hans Gunna sem ég trúi ekki að sé loksins að klárast!
En ég ætla að láta fylgja bumbumyndir frá því í gær og í síðustu viku því mér finnst bumban hafa stækkað svo mikið á einni viku. Smáá mygla í gangi en það er alveg afsakanlegt þegar maður er búinn að vera í vinnunni í 10 tíma, right? :P
30 vikur og 31 vika
2 comments:
Þarna er hún þessi krúttbumba :) gaman að sjá muninn milli vikna, ótrúlegt hvað svona kríli getur sprottið út á 7 dögum!!
Haha já ég veit mér finnst hún stækka ekkert smá hratt þessa dagana, enda er hann að þyngjast um alveg 250g á viku og ég alveg ... hóst hóst.... aðeins meira en það :D
Post a Comment