Monday, September 10, 2012

Barn í maganum

Það er barn í maganum á mér! Í alvöru, ég er búin að finna það sparka í mig! Maginn á mér er orðinn þvílíkt útstæður því barnið er svo stórt að það er ekki pláss fyrir það inní mér! Það fær hiksta, stundum oft á dag og ég finn það bæði með bumbunni og líka ef maður setur lófann á magann! Er það ekki pínu messed up? Mér finnst það.


Á föstudaginn ætluðum við að fara norður en af því að Alberti bauðst aftur að spila fyrir Lindex þá frestuðum við því til laugardags og ég tók að mér kvöldvakt í staðinn fyrir morgunvakt. Mér fannst ágætt að vinna um kvöldið svo ég væri ekki að svekkja mig yfir að fara ekki á karla- og konukvöldið sem var víst mjög skemmtilegt.

Á laugardaginn rúlluðum við svo norður en kíktum fyrst við á Skaganum í skonsukaffi hjá ömmu. Pabbi og Gunni voru að setja upp loftnet fyrir hana og það var gaman að sjá hvað allt er orðið fínt þarna, allt frá Diddahúsi og yfir í grindverk og fínpússaðar tröppur.

Þegar við vorum komin norður fórum við í pottinn og teygðum vel úr okkur fyrir gúrme kvöldmat hjá Hönnu. Ég var alveg búin á því um kvöldið!

Morguninn eftir vaknaði ég við að ég ældi upp í mig (jömm) og brá svo við það að ég hrökk upp og fékk massífan samdrátt! Sprikli var ekki nógu ánægður með þessa meðferð og tók léttan karatedans til að mótmæla! Kósý vakn á sunnudagsmorgni :D

Svona vaknaði ég á laugardaginn, aðeins meira kósý :) (ég fer á milli Alberts og Lúsíar!)

Fórum svo í afmæli til Hrafns Sölva, átum á okkur gat og lékum við afmælisbarnið. Náðum svo að vera á undan veðrinu suður en vorum reyndar næstum lent í árekstri við Staðarskála og vorum alveg ágætis stund að jafna okkur á sjokkinu. Mikið var ég fegin að sprikli var vel varinn inni í bumbunni minni, hvernig verða sjokkin manns ef e-ð kemur upp á og hann situr bara einn í stólnum sínum í aftursætinu?!

Við sóttum einmitt bílstólinn og keyrðum með hann suður og man alive það gerði hlutina raunverulega! En það er heldur betur orðið stutt í þetta svo kannski kominn tími fyrir mig að "get over it", barnið er á leiðinni :P

Ég er búin að fá fullt af samdráttum í dag, í morgun og í kvöld örugglega um 5 eða fleiri á klst en ég er ekkert að hafa áhyggjur af þeim lengur. Ætla að hlusta á gut feeling sem segir að allt sé í góðu :)

Á miðvikudaginn er svo mæðraskoðunin sem ég missti af í síðustu viku og ég er með pínu kvíðahnút í maganum yfir að hún segi að ég eigi að minnka meira við mig út af grindarlosinu :/ En það er kannski ekki vitlaust, ég er farin að sofa svo illa og það er óneitanlega truflandi í vinnunni að vera með stöðugan verk. En við sjáum til hvað hún segir!

Nóg í bili, BÆÆÆ

3 comments:

Lára Ósk said...

haha looove smack the pony! þær eru svo fyndnar.
Hmm það er öðruvísi að vakna við það að æla uppí sig! hef ekki lent í því og vona að það muni ekki gerast :)

já bææææ
P.s Eins gott að þú fórst heim að leggja þig eftir vinnu!! :)

Ósk said...

Ohh já ég elska þessa þætti, finnst hinn oblivious sketsinn líka ógeðslega fyndinn, þar sem hún er með hundinn!

En ég fór reyndar ekkert að leggja mig, slakaði bara vel á sem er örugglega betra því ég verð svo oft grömpí eftir lúr haha :D

BÆÆÆ

Albert said...

Skemmtileg helgi að baki þrátt fyrir ælingar uppí kok.. Konan sem við keyrðum næstum því á var jafn oblivious og konan í myndbandinu þarna :P