Þvílíkur munur á einu barni eftir að ég tók aðferðirnar í gegn við brjóstagjöfina. Ég var síðast með Gunnar á brjósti þegar hann var 13/14 mánaða og hafði hreinlega ekkert undirbúið mig fyrir að vera með nýbura á brjósti. Hugsaði með mér að ég hlyti nú að muna öll handtökin. Boy was I wrong! Jújú þetta er svosem fljótt að koma til baka um leið og maður fer að rifja upp en það hefði verið næs að vera búin í undirbúningnum áður en á hólminn var komið. Hann tók brjóstið ekki nógu langt upp í sig svo hann gleypti mikið loft og ég var að drepast í nipplunum. Þetta orsakaði 3 svefnlausar nætur, mikinn grát og mikla þreytu! Núna er ég farin að taka mikið harðar á því að hann taki brjóstið rétt, að ekki heyrist neinir smellir og að ef takið losnar þá byrja ég upp á nýtt. Í gærkvöldi var ég reyndar komin með 2 hnúða og varð auðvitað skíthrædd um að fá sýkingu en ég lét Albert nudda á meðan litli saug og það lagaðist.
Gunnar er búinn að vera mjög ómögulegur. Hann er ekki búinn að taka lúrinn sinn í dag. Albert fór með honum inn áðan en það endaði í algjörri grátsprengju, ekka, tárum og hori. Ég skipti við hann og náði að róa aðstæðurnar en lúr var ekki í myndinni. Núna eru þeir feðgar inni í herbergi að horfa á klaufabárðana í von um að sá stutti lognist út af en ég efast um að þrjóskan hans leyfi það! Bara ef veðrið væri betra þá væri hægt að skutla honum út og þurfa ekki að húka svona heima. Við flýttum HNE tímanum og fáum að koma í lok mánaðar. Eyrað er greinilega enn að bögga hann (í vonda veðrinu í dag er hann mikið með puttann í vinstra eyranu og segir "mamma sjáááðu eyrað!"), hann er enn mjög ljósnæmur (getur ekki verið með augun opin í stofunni þegar sólin skín inn), hann fær blóðnasir ca aðra hverja nótt og útbrotin í klofinu eru búin að vera í u.þ.b. 2 vikur. Kannski tengjast þessir hlutir ekkert en við vitum að það þarf að líta að eyranu og líklega fjarlægja nefkirtlana. Þegar hann var með lungnabólgurnar í jan og feb kíktum við til HNE læknisins (Stefáns) og hann sagði að rörið væri farið úr vinstra eyranu (hann náði ekki að taka það samt) og að það væri enn vesen á því eyra. Hljóðhimnan væri mött og það væri slím og vitleysa á bakvið hana. Á röntken kom svo í ljós að nefkirtlarnir eru of stórir.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla að vekja þetta 5 daga barn mitt til að gefa því, í von um að ná að snúa sólarhringnum aftur við.
No comments:
Post a Comment