Thursday, March 26, 2015

Sól og snjór

Ég held að það sé að gera góða hluti að gefa Gunnari stíl fyrir leikskólann. Í morgun lamdi hann sig nokkrum sinnum í höfuðið en þegar var komið að því að fara af stað var hann svo spenntur fyrir því að mega fara í stígvélunum  að hann talaði ekkert um að vilja ekki fara! Það var ekkert smá gott í hjartað, man ekki hvenær það gerðist síðast að hann sagði ekki að hann vildi ekki fara. Ég held það hljóti að vera að þegar honum líður betur líkamlega fari honum að finnast skemmtilegra á leikskólanum.

Í gær þegar Albert sótti hann var hann rennandi blautur í fæturna því hann hafði verið úti að drullumalla. Í morgun þegar hann vaknaði var hann hás og hóstandi. Núna krossleggjum við alla fingur og allar tær um að hann verði ekki veikur, hann má ekki missa af aðgerðinni á þriðjudaginn!

Í gærkvöldi fór Albert á tónleika þegar Gunnar var sofnaður. Litli vakti Gunnar með öskrum þegar ég var í miðri kúkableiu og Gunnar kom helsáttur fram í stofu og ætlaði ekki að sofa lengur. Sjitt! Hann lagðist á gólfið og var sjáanlega yfir sig þreyttur svo ég kláraði bleiuna, fyllti á stútkönnuna hans og grölti inn í svefnherbergi. Hann gaf sig og skreið upp í og sem betur fer lét hann sér nægja að ég labbaði um herbergið með litla í fanginu (í staðinn fyrir að sitja hjá honum eins og venjulega) því um leið og ég stoppaði fór sá stutti að kvarta, enda bara búinn úr öðru brjóstinu. Hann vaknaði svo aftur og sofnaði á gólfinu á milli rúmsins og beddans og ég sat bara hjá honum og gaf brjóst á meðan. Það var því léttir þegar Albert kom heim og ég gat rétt honum litla á meðan ég kláraði dæmið með Gunnari!

Það er yndislegt veður úti og ég geeet ekki beeeeðið eftir að mega fara út með litla í vagninum. Ljósmóðirin sagði að það væri miðað við 4 kg eða 4 vikur fyrir nýbura að fara út. Þar sem hann fæddist tæp 4,5 kg þurfum við að bíða í 2 vikur í viðbót þar til hann verður 4 vikna. Núna reynum við að hafa alltaf e-ð að gera eftir leikskóla, fara í heimsóknir eða með Gunnar út á róló. Mamma og pabbi eru bæði veik, Gunni er að jafna sig eftir veikindi og það eru líka veikindi hjá Konna og Beggu!

Bólurnar eru búnar að minnka helling hjá litla og naflinn lítur mun betur út en það er enn að blæða smá úr honum. Hann er farinn að láta heyra hressilega í sér ef honum mislíkar meðferðin. Hann byrjar á því að kvarta smá en á núll-einni er hann kominn á háa Cið! Honum finnst óþægilegt að vera með óhreina bleiu en finnst svolítið gott að vera berró og hreinn. Þegar ég er búin að þurrka honum eftir bleiu læt ég hann oft liggja bara og hann horfir í kringum sig og gefur frá sér sjúklega krúttleg "gúúú" hljóð.

Nipplurnar mínar eru enn helaumar enda fá þær oftast að finna fyrir því ef litli er e-ð tæpur í maganum og þarf að kúka eða prumpa. Óléttubumban er löngu farin en eftir sitja súkkulaðikílóin sem planið er að skræla burt fyrir giftingu. Ég hef svosum ekki miklar áhyggjur af þeim, ég borða eins og hross og er endalaust svöng, spara ekki snakkið/poppið/nammið en samt er ég alls ekki að þyngjast. Akkúrat núna er ég mikið að sækjast í rugl mat því ég er svo þreytt en ég þykist vita að um leið og ég hætti í ruglinu að þá fari lýsið að renna. Í dag fór ég í fyrsta skipti í ekki-óléttu leggings og það er ferlega fyndið að sjá að þær passa alveg og ég get alveg notað þær en maginn er enn mjög mjúkur svo þær mynda fallega fellingu þegar ég sest!

Jæja ég ætla að fara að pinna hreiður, yfir og út! :)

No comments: