Monday, March 30, 2015

Veitiggi

Magnað hvað slitinn svefn hefur áhrif á minnið hjá manni. Við Albert þurfum virkilega að leggja höfuðið í bleyti til að geta munað hvað við gerðum kvöldinu áður og ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hversu oft ég gaf litla yfir nóttina. Ég man eftir löngum vöknunum, eins og í nótt vorum við vakandi í 1,5 tíma því litli kúkaði og þegar hann var búinn úr báðum brjóstum fékk hann svo mikið upp í sig að ég þurfti að hafa hann uppréttan þar til hann gat sofnað.

Í gær fór ég ekki úr náttfötunum allan daginn. Sturtaði mig alveg og var dugleg, en bara á náttfötunum! Það var voða næs, en í dag langar mig út. Það er svo geggjað veður að við ætlum að fylla á dekkin í vagninum og fara með litla að sækja Gunnar á leikskólann. Það var auðveldara að fá Gunnar á leikskólann enn þegar komið var að því að fara í skóna þá kom línan sem ég kvíði alla morgna fyrir að heyra; "Gunnar vill ekki fara á Seljaborg". Ég held að hann sé með kinnholu- eða ennisholubólgu. Hann er búinn að lemja sig rosa mikið í höfuðið um helgina og kvartaði undan verk í enninu. Hann togar voða mikið í eyrun sín og er alltaf með um 5 kommur. Í dag er mánudagur og á miðvikudaginn er aðgerðin. Ég er að spá í að heyra í doksa með hvort það sé allt í lagi að hann sé kvefaður í aðgerðinni.

Litli grætur voða mikið á kvöldin. Veit ekki hvort það sé hægt að flokka hann sem kveisubarn en við þurfum voða mikið að rugga honum, sussa, gefa snuð, syngja fyrir hann og ganga með um gólf. Maður heyrir blurulur í maganum hans og þegar hljóðin hætta þá róast hann. Bólurnar eru nánast farnar, bara rauðir blettir eftir þar sem þær voru. Flagnið er líka búið að minnka og augun hans farin að vera meira opin. Mér finnst hann líkjast Gunnari meira með hverjum deginum. Gunnar er yndislegur við hann! Ég hefði ekki getað trúað því hvað hann er góður við likka baddnih. Alltaf ef hann heyrir í litla gráta þá biður hann okkur að knúsa hann / setja í vögguna / gefa honum brjóst og svo útskýrir hann fyrir okkur að honum sé bara illt í maganum og allt sé í lagi. Í gær fór litli að gráta í vöggunni og við foreldrarnir vorum ekki nógu snöggir að bregðast við svo Gunnar stóð hjá honum og strauk um höfuðið og breiddi yfir hann teppi. <3


No comments: