Nóttin var löng! Nágrannarnir vöktu Gunnar með mökunarópum sínum og hann ætlaði ekki að taka það í mál að fara að sofa aftur. Svo vaknaði hann líka seinna um nóttina og í bæði skiptin bugaðist ég og gaf honum til að reyna að svæfa hann. Endaði með að taka hann uppí í seinna skiptið og hann svaf þar restina af nóttunni, þar til vekjarinn hans Alberts fór af stað um 6.30. Sem þýðir að við náðum um 4,5 tímum af svefni og erum núna tóm í hausnum því við erum bæði svo þreytt!
Við gerðum jólaseríulistaverkið okkar í gær og ég er með 2 myndarlegar blöðrur á puttanum eftir það! Það kemur ágætlega út en fullkomnunarsinninn getur bent á 100 atriði sem hefðu mátt betur fara. Fokkit, það fer upp :)
Í gær svaf Gunnar í 1,5 tíma úti í vagni! Ég marg tékkaði á honum því þetta er svo svakalega óvanalegt, en honum leið bara vel. Þannig að í dag var ég staðráðin í að endurtaka leikinn og reyndi að gera allt nkl eins og í gær en hann svaf í 40 mínútur. Sem er þó 10 mínútum lengra en venjulega, svo við horfum nú á björtu hliðarnar. Hann svaf s.s. í 30 mínútur um morguninn, 40 mínútur í hádeginu, ca 30 mín eftir hádegi og fékk sér svo smá kríu um kvöldmatarleytið. Okkar maður er aaansi argur og pirraður en ég held að tannholdið spili líka inn í það, hann er hressilega rauður þar sem framtennurnar eru að koma.
Albert er á leiðinni að kaupa stíl fyrir hann en er að ganga um gólf með hann eins og er til að halda honum góðum.
Það er ofur sætt að hlusta á Gunnar segja "mamamama", svo er hann í harðri þjálfun að læra að klappa og að sýna að hann vilji koma þegar maður býður honum það. Hann er orðinn nokkuð góður í því og ég dey úr krútti í hvert sinn.
Jæja ég þarf að hjálpa Alberti að gefa púst, svo er það búbbítæm og svo svæfing!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Jólaseríulistaverk? Forvitni mín er vakin.
Post a Comment