Wednesday, May 29, 2013

Stíll á dag kemur skapinu í lag

Alveg er ég ekki að fíla það að þurfa endalaust að vera að gefa Gunnari stíla án þess að vita nkl hvað er að. Í kvöld sofnaði hann um 8.30 (eins og venjulega) svo vaknaði hann hálftíma seinna og grét í klukkutíma. Þegar svona gerist grætur hann ekki samfleytt, heldur er eins og hann sé að reyna að sofna en takist ekki að festa svefn. Hann svæfir sig með því að strjúka fingurna okkar en svo þegar hann er alveg að ná að sofna þá byrjar hann að vola. Ef maður bregst ekki nógu hratt við vindur hann sig upp og grætur. Þessa dagana gengur erfiðlega fyrir okkur að skiptast á því hann vill bara að ég sé hjá honum og ef Albert ætlar að leysa mig af þá fer allt í vitleysu og gráturinn verður harður og með ekkasogum.

Annars var dagurinn bara nokkuð góður svefnlega séð, eftir hádegi svaf Gunnar í hálftíma í vagninum en ég náði að svæfa hann aftur og þá svaf hann í klukkutíma í viðbót! Hann var svo reyndar mega ómögulegur í kvöld og við þurftum að skiptast á að ganga með hann um gólf.

Hann er reyndar búinn að vera nokkuð ómögulegur í allan dag, ég get ekki sagt að ég hafi hlakkað til þess að vera ein með hann í allan dag, bíllaus, áður en Albert fór í vinnuna í morgun. Þvílíkt ónógur sjálfum sér og alltaf að kjökra og væla. Mig grunar að tennurnar séu að bögga hann en tönnin hans er ekki alveg komin í gegn sýnist mér og hann er rauður. Hún er samt komin nógu langt út til að hann geti notað hana til að gnísta tönnunum saman! Ugh það er ekki fallegt hljóð! Ég fæ alltaf gæsahúð þegar hann gerir þetta og hann er alls ekki að spara það :D

No comments: