EN núna er kominn tími á myndir af málningarvinnunni okkar. Ég var búin að setja inn "before" myndir, þessar eru svona af work in progress, en ég sé að við höfum ekki verið nógu dugleg við að taka myndir þegar verkinu er lokið! Og núna er öll íbúðin á haus, verkfæri og ryk alls staðar, þannig að "after" myndirnar verða að bíða aðeins betri tíma :)
Hríðskotabyssuveggurinn og tengdapabbi að pússa spatlið
Tengdó að pússa á fullu og Albert málar loftið
Pálmi vinur Alberts kom og hjálpaði við að setja "silkigráan", litinn sem við völdum að hafa á allri íbúðinni með hvítri rönd efst. (Svo koma hvítir gólflistar vonandi fljótlega!)
Albert var ekki ánægður með græna litinn svo hann ákvað að gera hann gráan
Fyrst köttar maður með grunnlitnum yfir málningarteipið, svo litaða litnum, þá kemur falleg lína :)
Vinnandi fólk! Eva úti í garði að vinna meðan Albert gerir einn vegginn í stofunni dökkan
Arndís kom og skellti sér í hjónaherbergið þó hún hafi nú varla tímt að mála yfir þennan fallega gula :P Við slepptum því að mála vegginn hægra megin við hana því við ætlum að setja veggfóður þar.
Stína hjálpaði helling í eldhúsinu, hennar djobb var að lakka eldhúsinnréttinguna hvíta eftir að búið var að grunna hana. Pabbi er að ná græna ofninum niður.
Maggi batman er búinn að vera rosa duglegur að koma og hjálpa, hér eru hann og Albert í eldhúsinu
Ofninn kominn út, á þessari mynd sést litadýrðin sem fengið hefur að njóta sín á honum yfir árin
Eva var sett í að skafa málninguna af ofninum, e-ð sem við dauðsáum eftir að byrja á því það var auðveldast að mála bara beint yfir óskapnaðinn
Stína á fullu í lakkinu, ég kom ekki nálægt eldhúsinu meðan þetta gekk á því maður varð hífaður held ég bara af gufunum! Enda undi hún sér vel þarna... :P
35 vikna bumba og Stína að þykjast eiga eitthvað í hana
Alberti fannst töff að fá sér hvítar lakk-strípur
Einn ##$%$% ofninn, sjúklega mikil vinna að skrapa þetta af honum!
Brúni liturinn sem við völdum á einn vegg í barnaherbergið í prófun
Klína bara nógu miklu á þetta!
Eldhúsið orðið hvítt og Albert über sáttur með það. Versta er hvað karrýgula borðplatan stelur sviðsljósinu og við vitum ekki hvernig við getum lagað það :S
Eins og ég segi er ég ekki með neinar "eftir" myndir ennþá, en þær koma :)










3 comments:
I'm so excited to see after pictures of both your new place but also mainly after YOUR PREGNANCY! It's getting SO close now!!! Can't wait go see the little one! Enjoy sleeping now while u can. I'm sitting here with a wide awake baby 6 o'clock in the morning on a Saturday. But loving it anyways for some reason ;).
Hugs!
Nú þið flísaleggjið bara borðplötuna með öllum prufunum af baðherberginu, gerið svona mosaic brjálæði eitthvað, láttu bara innri listamann taka völdin með að púsla flísabrotum saman. Annars er bara um að gera að fagna Retro, það er víst móðins ;)
Haha yes it's just right around the corner, I can't believe how soon it is actually! :| The good news is that now everything is coming together nicely with the apartment so I'll have more time to rest, and hopefully sleep better at nights. I bet you love every minute of being wide awake at brutal hours, it's gonna be so worth it, I can't wait :D
Birna það er ekki svo galin hugmynd að flísaleggja þetta bara! :D En það verður að bíða betri tíma allavega, ég er komin með ÓGEÐ af flísalagningu í bili :P
Post a Comment