JEIJ! Við erum flutt inn! Sváfum fyrstu nóttina okkar í Teigó í nótt og hún var bara nokkuð góð! Ég fékk smá víðáttubrjálæði að sofa í rúmi í fyrsta sinn síðan ég-veit-ekki-hvenær (við settum 120cm dýnu ofan á svefnsófann hjá pabba og erum búin að sofa á henni síðustu mánuðina) en ég held það verði fljótt að venjast. Eini gallinn var að við gátum ekki slökkt á ofninum inni í herbergi svo mér varð aaansi heitt, en við opnuðum gluggann svo það varð allt í lagi.
Þvotturinn okkar er heldur betur búinn að safnast upp undanfarið, enda erum við alltaf búin að vera á leiðinni að flytja inn. Síðan í gær er ég með í fjórðu vélinni og karfan er enn full! OG það eru 3 pokar með barnafötum hjá mömmu. Mæ ó mæ.... En mikið er gott að vera að gera VENJULEGA hluti loksins eins og að þvo þvott og vaska upp! Ég er meira að segja búin að vera að hekla! OG við horfðum á 2 þætti í gærkvöldi! (Ég reyndar horfði á seinni þáttinn í gegnum augnlokin mín, góður hæfileiki) Þannig að allt madnessið er á undanhaldi og hversdagsleikinn að taka við. Verði hann hjartanlega velkominn :)
Kisurnar taka nýja staðnum nokkuð vel, Lúsí er frekar lítil í sér reyndar og límist við fæturna manns en Krummi öllu brattari, alveg eins og við bjuggumst við. Þau fengu bæði nýjar ólar, Krummi með mesta endurskini sem til var) og Lúsí fór í klippingu og er alsæl með að vera með styttri feld og flókalaus. Hún er svo ferlega sæt svona happy, alltaf að henda sér á bakið og nýtur þess að teygja á hár- og flókalausa maganum sínum.
Call me hormonal en mér fannst smá erfitt að fara úr Stóragerðinu í gærkvöldi og skilja pabba aleinan eftir. Leið eins og ég væri að flytja að heiman all over! Mjög kjánlegt að vera lítill í sér yfir svona e-u, sérstaklega þar sem við buðum honum í mat í kvöld og hann er í 10 mínútna fjarlægð, en íbúðin var bara e-ð svo tómleg þegar við vorum að fara. Ég var nokkuð fljót að jafna mig enda held ég að pabba finnist frelsið alveg ágætt, við erum alveg ágætis pakki, ólétta konan, kettirnir tveir og Albert :D
Sprikli er hress í bumbunni, spriklar svo fast stundum að mér finnst að hann ætli út! Og ef að ég myndi lyfta bolnum mínum ætti ég að geta séð tásur! Spörkin trufla mig annars ekkert, þau eru yfirleitt kærkomin og ég get eytt mínútum saman í að stara á bumbuna þegar hún hendist til og frá. Á kvöldin treður hann sér reyndar stundum undir rifbeinin mín og þá getur verið ansi mikill þrýstingur innan frá, en ekkert sem ekki er hægt að laga með stórum púða.
38v mæðraskoðun gekk mjög vel, blóðþrýstingurinn tip top eins og alltaf (held hún hafi sagt 110/75), þyngdin mín fín og legbotninn 35. Það er eðlilegt að hann sé svona lár því sprikli er svo fastskorðaður og ég er hávaxin. Ég fékk hana loksins til að athuga með blóðmagnið mitt upp á hvort ég ætti að taka járn og jújú, fullur skammtur takk fyrir. Hefði verið næs ef hún hefði samþykkt að tékka á þessu fyrir 2 vikum, en nóg um það. Næsta skoðun er svo á settum degi. Sem er eftir 10 daga. Ómægúddness!
Albert er á námskeiði alla helgina, e-r svaka flottur erlendur gestakennari er að kenna strákunum í kennaradeildinni hvernig á að kenna. Eða eitthvað þannig :P Planið mitt er að klára loksins buxurnar sem ég er búin að prjóna á sprikla (set mynd næst vonandi) þvo þvott eins og enginn sé morgundagurinn og strauja eins mikið og grindin mín leyfir en hún er óhressari með hverjum deginum. Mamma kíkir líka mjög reglulega í heimsókn og er hún að vinna í því núna að falda stofugardínurnar sem við fengum frá afa. Þaaað sem maður lætur dekra við sig sko... :P Svo auðvitað matur í kvöld og hver veit nema við förum actually út úr húsi aldrei þessu vant! Ég á tvo frímiða í bíó og allt, kannski maður verði bara ungur og leiki sér!
Kv. Bollan
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Tiiiil Hamingju með fyrstu íbúðina :)
omg til hamingju með að vera flutt ! :) og djö er bumban orðin hentug núna fyrst þú getur notað hana sem borð ;) hehe
þeinkjú! :D
haha já loksins get ég farið að nýta hana í e-ð :P
Post a Comment