Tuesday, October 30, 2012

Andvaka

Og ég ákvað að dröslast loksins framúr í staðinn fyrir að liggja endalaust í þrjóskunni þangað til mér er orðið illt alls staðar. Nóttin er búin að vera ansi löng með mörgum pissuvöknum og oj barasta nábít! Gaman að smakka á því klukkan 7 sem maður borðaði kl 21 kvöldinu áður :S Vooonandi læri ég loksins að hætta að borða á kvöldin eftir þetta! Held samt að það sé frekar magnið sem er vandamál frekar en tímasetningin :$

Ég er farin að fá alltaf hausverk á morgnana sem fer svo þegar líða tekur á daginn. Þunn án þess að drekka! Stuuuuð...

Sprikli er búinn að vera voða duglegur í bumbunni, alltaf að tjútta í góðum fílíng. Mér finnst svo sætt að hann byrjar oft að sprikla þegar hann heyrir röddina hans Alberts.

Þegar maður er andvaka oft í langan tíma á nóttunni fer hugurinn á alls konar undarlega staði. Ég fer oft að hugsa hvernig sprikla líði í bumbunni og leiði hugann að því hvernig karakter hann verður þegar hann kemur út. En hvað ef hann verður ekki heilbrigður? Hvað ef hann erfæðist svo holgóma að hann á erfitt með að kyngja? Eða ef hann verður blindur eða heyrnalaus? Hvað ef hann verður með downs heilkenni með tilheyrandi heilsukvillum og þroskaskerðingu? Hvað ef hann verður einhverfur og mun hata líkamlega snertingu? Hvað ef hann verður með hjartagalla? Við vorum jú send úr einni mæðraskoðuninni asap á spítalann í mónitor því hjartað hans var að slá svo undarlega.

Auðvitað er ekkert sem maður getur gert nema vona það besta og treysta á að líkurnar séu manni í hag og sem betur fer eru svona pælingar alls ekkert að ásækja mig.

Mikið er ég fegin að vera með áskrift að fjölvarpinu þegar ég get ekki sofið! Elska þætti eins og how it's made þó ég endi nú oftar á að horfa á Kardashian fjölskylduna :$

Jæja ég ætla að fara að prjóna hinn sokkinn og bíða eftir að Albert vakni eftir klukkutíma :)

6 comments:

Lára Ósk said...

úff ég hefði bara átt að koma í heimsókn til þín í nótt, ég var líka andvaka alveg til kl 5 í nótt og þurfti svo að vakna kl 8 til að fara í vinnu. ÓMÆ
Bakið, nábíturinn og allt var að gera útaf við mig...gaman gaman

Birna Run said...

Er nábítur svona bakflædi? Hef aldrei heyrt thetta ord ádur.

Lára Ósk said...

Já það er bakflæði og það crazy mikið, svíður stundum í eyrun því það er svo mikið sem kemur uppúr manni...Ojts

Ósk said...

Ojj nábítur er það versta... Það er þegar brjóstsviðinn fer á næsta stig og maður fær jafnvel spíjuna upp í sig :S Þannig að ég er mikið í að kyngja ælu þessa dagan :/

Birna Run said...

Já okay úff! Ég nefninlega var med thessi ord í rugl, thad var ekki fyrr en Elva Sara kom um daginn ad ég vissi ad verkurinn sem madur fær stundum er brjóstsvidi og ad brjóstvidi er ekki thad sem kallast víst nábítur.

Birna Run said...

Já okay úff! Ég nefninlega var med thessi ord í rugl, thad var ekki fyrr en Elva Sara kom um daginn ad ég vissi ad verkurinn sem madur fær stundum er brjóstsvidi og ad brjóstvidi er ekki thad sem kallast víst nábítur.