Tuesday, October 23, 2012

38 vikur

Hikk, hikk, hikk... greyið litla alltaf með hiksta, greinilega á fullu að æfa sig að anda og kyngja!

Komin 38 vikur í dag og er varla að trúa því! Mér tókst að ná mér í e-a magakveisu og er búin að vera á varabatteríinu í dag út af henni. EN ég slapp samt ekki við myndatöku!

Albert var svo lengi að fullkomna uppstillinguna að módelið var löngu búið að missa athyglina :$

Bollan sjálf

Síðasta myndin af mér í vinnugallanum (tekin um helgina), ég var svo montin að komast ennþá í hann að ég varð að láta mynd fylgja :P 

Bumban tók vaxtakipp í þessari viku held ég, mér er búið að finnast það og Albert hafði orð á því í morgun líka. Ég er einmitt búin að vera að fá svolítið af togverkjum svo það eiginlega hlýtur að vera. Ætli það styttist ekki í að húðin mín "springi" og ég fái sebrarendur á magann!

Albert er úti í skúr að æfa sig fyrir prófið á morgun en við vorum að koma heim úr farsælum bílstólaleiðangri. Við s.s. vorum löööngu komin með bílstól sem átti að duga allavega ár í viðbót, svo þegar Albert var að festa beisið í bílinn var ég að dúllast með hann og sá að það stendur skýrum stöfum á honum "DO NOT USE AFTER DECEMBER 2012". Sjitt! En við fengum fínan Graco stól með base og ungbarnainnleggi á 7000 kall og áður en við keyptum hann fengum við að dobbúltékka á endingunni og jújú hann rennur ekki út fyrr en lok árs 2013. Hjúkket! Núna þurfum við bara að þrífa hann og skella honum í bílinn :)

Mér er búið að líða frekar vel bara, auðvitað væri gaman að geta sofið meira og sleppt því að vera alltaf með verki í stoðkerfinu en ég held það sé bara partur af programmet svo ég get ekki kvartað. Á morgun fer ég í mæðró og þá SKAL ég muna eftir því að suða í henni að mæla járnið mitt, þolið mitt er eins og hjá níræðri manneskju! :D Eða mér finnst það allavega, en svo þegar ég ber mig saman við aðrar bumbur á svipuðu reiki þá tala þær allar um að vera búnar á því á kvöldin eða eftir verslunarleiðangur, þannig að kannski er ég að setja of miklar kröfur á þolið mitt. En æ fyrst það er svona lítið mál að mæla járnið (það er víst bara stunga í puttann!) þá sé ég ekki að það saki að tékka.

Sprikli endurtók leikinn frá því á milli síðustu mæðraskoðana. Hann er búinn að vera á undarlegustu stöðum síðustu vikuna, ég fann hann hiksta en ég gat engan veginn staðsett hann! Það var eins og hann væri í felum lengst inni í mér hreinlega. En, deginum fyrir mæðraskoðun er hann að sjálfsögðu kominn í gömlu góðu stellinguna og sparkar spörkum sem ég þekki vel. Það er góð tilfinning að hafa hann á gamla staðnum, ég fann hreyfingarnar hans svo illa þegar hann var á þessu ferðalagi.

Ég er farin að fá fyrirvaraverki, dadaDAMM! Ómægúddness hvað það er sárt. Vakna stundum við þá, þeir eru eins og samdrættir á sterum. Alveg þannig að ég þarf að einbeita mér að því að hreinlega leyfa sársaukanum að hafa sinn gang og líða hjá. Alls ekki búnir að vera margir sem betur fer, koma alltaf inn á milli venjulegu samdráttanna sem eru trylltir eins og alltaf, sérstaklega ef ég dirfist að reyna hið minnsta á mig!

Í dag var stór dagur í íbúðinni. Pabbi og Albert fúguðu í gær og í dag settu þeir klósettið upp, ásamt handklæðaofninum og hurðinni að baðinu. Vaskinn ætla þeir að setja upp á morgun vonandi og þá er nú bara snitt snatt eins og spegill og dúll sem þarf að græja, ekkert því til fyrirstöðu að við gistum nóttina. Reyndar er ekkert því til fyrirstöðu í dag heldur, en við ákváðum að vera hér allavega eina nótt í viðbót aðallega út af kisunum, upp á að vera búin að gera meira hómí þegar við færum þau yfir.

Hlunkurinn minn að tapa sér úr elskulegheitum

Á morgun fer ég með Lúsí í klippingu þar sem við ætlum að raka á henni magann. Hún er farin að fá fleiri flóka á magann og smá á síðurnar líka undanfarið en það sama gerðist líka síðast þegar við stóðum í flutningum, þá flæktist hún öll greyið svo við ætlum að grípa snemma inn í og fyrirbyggja að þetta fari í e-ð óefni.

Jæja best að fara að prjóna svo ég klári nú þessar blessuðu buxur einhvern tíma!

3 comments:

Lára Ósk said...

Heyrðu mig, verður að halda litla gutta inni þangað til ég kem heim aftur :)

Nóra said...

Anna Sóley var ótrúlega ánægð að fá að sjá þessa sætu frænku með kúlu!!! Voða eru þið búin að vera myndarleg með alla þessavinnu í íbúðinni, smá ráð frá Nóru: njótið ykkar þessa síðustu vikur, það verður bið á sameiginlega bíóferð þegar litli frændi er kominn, hafðu það gott Ósk mín, kannast við tilhlökkunina!!

Ósk said...

Lára ég held hann sé ekki að fara neitt strax, ég vona allavega ekki! :D

Takk fyrir Nóra, já núna er sko kominn tími á slökun! Tásur upp í loft og njóta þess að gera venjulega hluti :D

Mikið svakalega hlakka ég til að hitta ykkur um jólin! Knús á ykkur :)