Og við eigum eftir að taka bumbumynd þannig að ég stel myndinni hennar Elvu sem hún tók af okkur Láru í gærkvöldi, en Lára er næstum nkl 2 mánuðum á eftir mér.
Hressandi tilbreyting að vera ekki í vinnugallanum á einni bumbumynd :) Hmm ég sé að ég á eftir að setja inn 35 vikna myndina, set hana inn þegar ég er búin að tæma myndavélina, svo þarf ég líka að setja inn myndir af allri málningarvinnunni!
En í dag fer ég ekkert í vinnugallann og ég fór heldur ekki í hann í gær. Ég finn mikinn mun á mér núna og frá því við fengum afhent fyrir rúmum 3 vikum síðan... Mér líður eins og ég sé löt, vill alltaf vera að taka pásur eða setjast niður eða fá mér að drekka, en betri vitundin segir að þessar síðustu 3 vikur á fullri keyrslu taki sinn toll og núna þegar það er minna en mánuður í settan dag er úthaldið skiljanlega á undanhaldi. Mér finnst virkilega erfitt að kúpla mig út úr framkvæmdunum í íbúðinni en maður verður að hlusta á kroppinn og það gengur ekki að vera alltaf á síðustu bensíndropunum. Albert og pabbi eru líka fullfærir um að vinna án mín þó þeir vilji nú af og til kalla á "verkfræðinginn" til að hafa stjórn á hlutunum og geta kennt um rangar ákvarðanir og svona :P
Nóttin í nótt var löng og hvíldarlítil hjá mér. Ég sat greinilega of mikið í gær, fyrst í vinnunni, svo á fæðingarundirbúningsnámskeiði og svo úti að borða með stelpunum og þetta orsakaði helaumar mjaðmir í nótt og böns af hörðum samdráttum. Það var nú ekki það versta við nóttina heldur blessaður nábíturinn! Ég veit ekki hversu oft ég vaknaði í nótt við að vera að æla upp í mig :S ÓGEÐslegt. Þannig að ég var mikið á vappinu, pissandi og poppandi Rennie og að reyna að koma mjöðmunum á mér betur fyrir. Kisurnar voru ekki að hjálpa heldur, fá oft athyglissýki á nóttunni þessa dagana því við erum svo lítið heima.
Undanfarið hafa samdrættirnir verið að styrkjast. Fjöldinn heldur sér sirkabát, en þeir eru alltaf að verða sárari og sárari, alveg þannig að ég þurfi að taka mér pásu í því sem ég er að gera og einbeita mér að því að láta hann líða hjá. Þannig samdrættir voru mjög vinsælir í nótt og í morgun, og oft bara nokkrar mínútur á milli. Þannig að ég er enn frekar lost með hvernig maður veit að maður sé að fara af stað, en mamma sagði að maður bara "finndi það" og ég er að treysta á það.
Ég ætlaði að fara upp í íbúð með pabba í dag og leggja nokkrar flísar en hann talaði mig ofan af því áðan, þannig að mitt djobb í dag er að hvílast eins og ég get, vinna í 5 tíma og kíkja svo í meðgöngusund í kvöld ef ég næ að skrá mig. Kannski líka prjóna smá. Arndísin mín á líka afmæli í dag svo ég verð allavega að heyra í henni og óska henni til hamingju með lífið og tilveruna :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

3 comments:
Thid erud svo fínar bádar tvær! Ég athuga bloggid ykkar beggja svona 2x á dag, hlakka klikk til ad sjá myndir af íbúdinni nú thegar thú ert búin ad pósta sjálfri thér :)
Thetta er allt svo spennandi!!
knús og kremja og vona ad thetta bakflædi hætti strax og thú thurfir ekki ad taka 4 vikur í vidbót med nábít.
Fokk!! 4 Vikur!!!! Hann er alveg ad koma!
Vá hvað ég verð eins og hvalur á mínum endasprett miðað við þig!
Takk Birna, já ég vona að þetta fari að róast og ég held að um leið og hann sé búinn að skorða sig aftur verði þetta bærilegra :)
Lára hættu nú alveg! Þú kynnir ekki að vera eins og hvalur þó þú værir orðin 100 kg með bumbu sem þyrfti hjólbörur!
Post a Comment