Sætasta undirhakan í bænum
Mér finnst lítið mál að höndla þessi kvöldköst. Ég veit að þetta er tímabundið, mjög algengt og að við erum að gera allt rétt til að bregðast við þeim. Mér finnst dagarnir erfiðari. Þegar ég er ein með hann og hann er örþreyttur en vill alls ekki sofa nema í fanginu mínu. Þá stend ég mig að því að telja niður þangað til Albert kemur heim því þá getur Gunnar sofnað í fanginu hans í smá stund á meðan ég hoppa í sturtu eða geng aðeins frá. En núna erum við komin með lyf sem á að hjálpa honum með bakflæðið og þá trúi ég ekki öðru en að hann fari að sofa lengur á daginn því yfirleitt þegar hann vaknar eftir stuttan lúr byrjar hann á því að æla yfir sig.
"En ég viiiil ekki sofa!"
Á morgun bauð mamma okkur og pabba í mat og ætla þau svo að passa Gunnar fyrir okkur á meðan við skreppum á tónleika. Þetta verður akkúrat yfir kveisutímann þannig að ég er með smá kvíðahnút í maganum því mér finnst svo ferlega leiðinlegt þegar hann er að öskra svona á aðra. Hann má öskra á mig eins og hann vill, ég tek því ekkert persónulega, en ég er alltaf hrædd um að fólk taki það inn á sig ef hann er að öskra á aðra. En ég er búin að impra á því við mömmu og pabba að það sé ekki hægt að taka þessu persónulega, hann öskri alveg jafn mikið hjá okkur foreldrunum og það eina sem virkar er svolítið harkaleg meðhöndlun, eins illa og það hljómar. En hann vill láta hrista sig frekar duglega og svo sussum við hátt.
Svona er hann akkúrat núna, sofandi með opin augun
Ég er dugleg að fylgja læknisráði nema í dag því það var bæði rok og rigning! En í staðinn var ég dugleg heima, bæði við heimilisstörfin og líka að grooma mig og það lætur mér líða voða vel. En ég er búin að fara í nokkra göngutúra og ég er búin að sjá að mjöðmin mín dugar í 20 mínútur af röskri göngu. Ferlega óþægilegt! Þannig að ég þarf að vera þolinmóð og halda áfram að vera dugleg, þá kemur þetta.
Alberti gengur mjög vel í skólaátakinu sínu, hann er farinn að æfa sig einu sinni á dag loksins, helst á öll hljóðfærin. Svo er KitchenAid vélin komin úr viðgerð, svo núna get ég bakað e-ð jömmulaði þegar tími gefst til, en við erum heeeldur dugleg að kíkja í bakaríin! Vélin fór í allsherjar yfirhalningu, það var skipt um legu og e-ð annað, hún var stillt við skálina og læsingin líka og fleira sem ég man ekki. Þannig að ég er nokkuð spennt að prófa hana!
Jæja ég ætla að segja þetta gott, Gunnar á örugglega eftir að vakna um 5 til að drekka og vera vaknaður fyrir daginn um 8. Þá er eins gott að vera í stuði því hann þarf að spjalla svo voða mikið og finnst svo æðislega gaman þegar ég syng og dansa fyrir hann :P (Greyið barnið!)
2 comments:
Þið eruð sko ofurforeldrar! :)
Vona að pössunin hafi gengið vel og þið hafið átt kósýtíma á tónleikum saman!
Takk fyrir það! :D
Pössunin gekk rosa vel en hann lét alveg hafa fyrir sér ;)
Post a Comment