Ég veit það er langt síðan ég skrifaði síðast og ég ætti sjálfsagt að segja e-ð merkilegra en þetta. En í nótt svaf Gunnar frá 12 til 7, vaknaði til að drekka og kúka og svaf svo áfram til 11.
En hann gerði aðeins meira en að kúka þarna klukkan 7, það væri nærri lagi að segja að hann hafi sprengikúkað yfir herbergið! Hann var e-ð búinn að prumpa og ég var voða ánægð með það og setti á hann nýja bleiu en áður en ég lokaði henni skaust gleðin úr honum. Og yfir mig alla, yfir gólfið, rúmteppið, púðana, kommóðuna og vegginn HINUM MEGIN í herberginu. Já, hann skeit veggjanna á milli í morgun. Ég eiginlega skil ekki hvernig hann gat skotið þessu svona út um allt, því það var alveg góður slatti sem fór í bleiuna sjálfa! Magnaður skítur :)
Hann er farinn að sofa merkilega vel á nóttunni! Það er farið að gerst æ oftar að hann sofi í 4-6 tíma í fyrstu lotu og er það auðvitað ekkert annað en frábært. Svefntíminn hans er þá frá ca miðnætti til hádegis og er það vel því hann sefur mest lítið fyrir utan það. En við erum að vinna í því!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hahahahahaaa :-D
Afi og amma sátu í hláturskasti
yfir þessum lýsingum :-)
En leið honum þá ekki betur eftir þessi ósköp?
Hann kippti sér voða lítið upp við hasarinn sem hann kveikti, sofnaði strax og svaf sínu blíðasta meðan foreldrarnir hlupu um eins og hauslausar hænur að þrífa allt batteríið! :)
Post a Comment