Aumingja litla músin mín er búinn að gráta og gráta undanfarna daga. Við töluðum við hjúkrunarfræðing í gær sem vildi fá hann niðureftir í vigtun til að vera viss um að hann væri að fá nógu mikið og þyngjast nóg. Litli maðurinn er orðinn tæp 5kg svo hann er að þyngjast feikinóg og er jafnvel að fá aðeins of mikið. Hún heldur að hann sé að detta í ungbarnakveisupakkann og sagði okkur að panta tíma hjá lækni sem sérhæfir sig í því. Mikið svakalega vona ég að þetta sé tilfallandi hjá litla okkar og að hann sé ekki kveisubarn! En t.d. í gær þá náði hann að sofa kannski samtals í 1 klst frá 9 um morguninn til 16 um daginn og grét þar á milli. Svakalega vont að sjá hann gráta svona, hann verður eldrauður í framan og maginn grjótharður. Svo kreistist svoleiðis gráturinn upp úr honum og mömmuhjartað brotnar :(
Hann nær að sofna ef maður hossar honum og bankar
Við erum búin að þróa með okkur alls konar ráð til að láta honum líða betur, best virkar að hossa honum duglega eða sveifla til og frá. Stundum setjum við kranann á fulla bunu eða blöstum tónlist fyrir hann og þá róast hann. Bílstóllinn stendur líka fyrir sínu, það er gott að rugga honum í honum eða taka hann upp og sveifla honum til og frá því ef hann sofnar þá er hægt að leggja hann niður og leyfa honum að sofa þar. Moby Wrappið hefur líka verið að reynast okkur mjög vel, það nær yfirleitt að róa hann niður ef maður labbar um og dúar vel í hnjánum.
Gott að vera í Moby, Krummi stressar sig ekkert á orginu.
Þannig að þessa dagana eyðum við deginum að mestu leyti í að hrista og hugga og banka og dúa. Æhh, núna t.d. er hann búinn að vera að lúra í vöggunni í um klst. og núna hrín af og til í honum og hann stynur og hóstar. Svo grætur hann smá og ég er nokkrum sinnum búin að standa upp til að hugga hann en þá sofnar hann aftur. OHH mig langar svo að LAGA það sem er að hrjá hann!
En greyið litla er oft alveg búinn á því eftir öll átökin og þá finnst foreldrunum ekki leiðinlegt að taka myndir af honum!
Uppgefin lítil mús
Ég er samt að vona að þetta sem er að hrjá hann sé tilfallandi magakveisa. Ég vaknaði nokkrum sinnum í nótt því mér var svo illt í maganum og svo var mamma að hringja og hún er komin með í magann líka. Mikið væri það óskandi!
Hjúkrunarfræðingurinn sem við töluðum við í gær var alveg yndisleg, skoðaði hann í bak og fyrir og eins og flest allir heilbrigðisstarfsmenn sem hafa skoðað hann kommentaði hún á hvað hann væri sterkur. Sterkur og hraustlegur. Jeij :)
Chilla hjá Dagnýju frænku
Hér er hann að hlusta á pabba sinn syngja stefið úr Malt og Appelín auglýsingunni
Og hér er hann að brosa til pabbans :)
3 comments:
aww vona að honum fari nú að batna í mallakútnum sínum, ekkert smá sætur þegar hann brosir, algjör krúttkall :)
Dásamlegur...as always! :*
Þeinksjúgæs :) já vonandi fer honum að batna!
Post a Comment