Mottóið okkar þessa dagana
Við hringdum á bráðamóttöku barna kl 1 í nótt til að athuga hvort það væri e-ð sem við gætum gert fyrir hann eftir nokkra klukkutíma af gráti, en svörin voru stuttaraleg og það eina sem við getum gert er að fara til Gests aftur í vikunni og "hang in there" þangað til. Það er ekki neinn ákveðinn tími dags sem hann er verri eða betri, þetta er nokkurn veginn sama ástandið allan sólarhringinn nema á nóttunni virðist hann eiga auðveldara með að sofna og sefur lengur (á daginn er það hátíð að ná 1 klst í einu), þangað til svona níu eða ellefu, þá byrjar ballið aftur.
Bugaðir feðgar
Þessi tími tekur heldur betur á taugarnar. Ég skal alveg taka gráti í nokkra klukkutíma á sólarhring, sér í lagi ef ég veit af hverju hann er og að hann sé í x langan tíma, en svona vesæld allan sólarhringinn reynir virkilega á. Það að hossa honum og rugga eða syngja fyrir hann virkar eiginlega ekki lengur, búbban virðist vera það eina sem róar hann svo ég leyfi honum voða mikið að sofna bara þar og sofa þar svo áfram. Rassinn minn er hressilega dofinn og nipplurnar enda örugglega 10cm langar, en honum virðist líða vel þarna og það er fyrir öllu.
Svona erum við núna
Sjálfstraustið mitt er tæpt þessa dagana og er ég farin að gráta hreinlega með honum í verstu köstunum. Í gær treysti ég mér ekki til að skipta ein á honum því ég fór bara að skæla við að sjá vökvann í bleiunni og naflann skagandi út, rauðan og glóandi. Mig langar svo að laga magann hans, það er svo vont að horfa á hann gráta svona sáran og geta ekkert gert, aftur og aftur og aftur.
Þetta er skrýtinn tími en sem betur fer erum við Albert dugleg að halda utan um hvort annað og við gleymum ekki að njóta hans. Þetta er jú einu sinni jólamánuðurinn og við erum með dásamlegan gullmola til að hugsa um, það kallar maður gott hefði ég haldið. Við erum í góðum höndum hjá Gesti, við erum dugleg og við erum jákvæð. Við ætlum að sigrast á þessu og barnið okkar mun vera það hamingjusamasta í bænum og við montnustu foreldrarnir. Sem betur fer eigum við góða að sem hlúa vel að okkur með aðstoð og fallegum orðum og látum við allt annað sem vind um eyru þjóta enda yfir það hafin og upptekin af öðru.
No comments:
Post a Comment